
Leikskólakennari / leiðbeinandi Seljaborg
Leikskólakennari/leiðbeinandi óskast til starfa - Ekki er um að ræða sumarstarf. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf haustið 2026.
Leikskólakennari/leiðbeinandi óskast til starfa við leikskólann Seljaborg, Tunguseli 2, 109 Reykjavík. Seljaborg er nú þriggja deilda leikskóli með 48 börn. Fyrirhugað er að opna nýja deild í viðbyggingu sem nú er í undirbúningi. Gert er ráð fyrir að 18 börn verði á nýju deildinni og að leikskólinn verði þá fjögurra deilda með alls 66 börn.
Leikskólinn er staðsettur við Tungusel í Seljahverfi. Í nágreninu er Seljadalur þar sem umhverfið er afar fallegt og fjölbreytt í óspilltri náttúrunni. Dalurinn býður upp á ótal kennslumöguleika með börnum þar sem m.a. má finna læki, tré, gróður og dýralíf.
Það eru fjölbreytt og skemmtileg verkefni í Seljaborg. Starfsmannahópurinn er samheldinn og innan hans ríkir góður starfsandi. Í Seljaborg er vinnuvikan 36 stundir.
- Að vinna að uppeldi og menntun leikskólabarna samkvæmt starfslýsingu leikskólakennara og áherslum leikskólans, þ.m.t. að taka þátt í skipulagningu faglegs starfs og foreldrasamstarfi undir stjórn deildarstjóra.
- Leyfisbréf kennara æskileg
- Reynsla af uppeldis- og kennslustörfum með ungum börnum kostur
- Lipurð og sveigjanleiki í samskiptum
- Frumkvæði, gleði og sköpun í starfi
- Faglegur metnaður
- Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
- Góð íslenskukunnátta
- Ókeypis í sundlaugar Reykjavíkurborgar með S-kortinu
- Árlegur heilsuræktarstyrkur þegar þú hefur starfað í 6 mánuði
- Ókeypis bókasafnskort og frítt á söfn með Menningarkortinu
- 36 stunda vinnuvika.
- Afsláttur af leikskólagjöldum í Reykjavík
Íslenska










