

Þroskaþjálfi - atferlisfræðingur
Óskað er eftir þroskaþjálfa, atferlisfræðingi eða öðrum sérfræðingi á sviði uppeldis- og menntunarfræða í 100% starf frá með 1. nóvember eða eftir samkomulagi. Leitað er eftir metnaðarfullum einstaklingi sem starfar í nánu samstarfi við kennara í skóla sem m.a. leggur áherslu á teymiskennslu, teymisvinnu, tækni og skapandi skólastarf.
Viðkomandi sérfræðingur vinnur í stoðþjónustuteymi skólans og veitir m.a. leiðsögn og ráðgjöf til foreldra og annarra starfsmanna. Hann styður við nám og atferlisþjálfun nemenda, í samstarfi við umsjónarkennara, er þurfa á sértækum stuðningi að halda í skólastarfinu og daglegum athöfnum.
Eitt af meginverkefnum sérfræðingsins er sértæk vinna með barn sem þarf mikinn stuðning og atferlisþjálfun.
Stekkjaskóli er grunnskóli á Selfossi sem tók til starfa haustið 2021. Fyrsti áfangi nýbyggingar skólans var tekinn í notkun í mars 2023 og 2. áfangi var tekinn í notkun í janúar 2025. Í skólanum eru um 450 nemendur. Fullbyggður verður skólinn fyrir um 550 nemendur í 1.-10. bekk.
Í Sveitarfélaginu Árborg búa um 13.000 íbúar og starfa um 1100 manns hjá sveitarfélaginu. Lögð er áhersla á að skapa starfsumhverfi sem stuðlar að vellíðan og árangri þar sem starfað er af fagmennsku og góðum ásetningi með hag sveitarfélagsins að leiðarljósi.
- Fylgist með velferð nemenda, hlúir að þeim andlega og líkamlega í samræmi við eðli og þarfir hvers og eins svo að þeir fái notið sín sem einstaklingar
- Sérfræðingur vinnur í nánu samstarfi við starfsfólk skólans og forráðamenn nemendí samráði við deildarstjóra. Tekur jafnframt þátt í samstarfi við ýmsar stofnanir og sérfræðinga sem tengjast skólanum
- Ber ábyrgð á að tryggja öryggi og velferð nemenda sinna
- Skipuleggur þjálfunaraðstæður, velur/útbýr þjálfunar- og námsgögn og fylgir eftir settum markmiðum. Metur árangur og endurskoðar markmið í samstarfi við samstarfsaðila
- Krafa um háskólamenntun á sviði þroskaþjálfunar eða atferlisþjálfunar eða aðra háskólamenntun á sviði uppeldis- og kennslufræða
- Frumkvæði, skipulagshæfileikar og sjálfstæð vinnubrögð
- Hæfni og áhugi á skólastarfi
- Góð færni í mannlegum samskiptum
- Hæfni til að tjá sig í ræðu og riti á íslensku
Íslenska







