Leikskólinn Bjartahlíð
Leikskólinn Bjartahlíð

Leikskólakennari/Leiðbeinandi

Leikskólinn Bjartahlíð óskar eftir metnaðarfullum og áhugasömum leikskólakennara eða starfsmanni með sambærilega menntun í 100% starf.

Bjartahlíð er sex deilda leikskóli sem starfar í tveimur húsum í Hlíðahverfi. Leikskólinn vinnur eftir hugmyndafræði Reggio Emilia og leggur mikla áherslu á sköpun, gleði og samvinnu.

Helstu verkefni og ábyrgð

Vinnur að menntun og uppeldi leikskólabarna samkvæmt starfslýsingu leikskólakennara, þ.m.t að taka þátt í skipulagningu faglegs starfs og foreldrasamstarfi undir stjórn deildarstjóra.

Menntunar- og hæfniskröfur

Leikskólakennaramenntun eða sambærileg menntun æskileg.

Góð íslenskukunnátta skilyrði. B2 samkvæmt samevrópska tungumálarammanum.

Áhugi á skapandi leikskólastarfi í anda Reggio Emilia.

Góð samskipta- og samstarfshæfni.

Frumkvæði, jákvæðni og faglegur metnaður.

Sjálfstæð, skipulögð og sveigjanleg vinnubrögð.

Stundvísi og áreiðanleiki.

Hreint sakavottorð í samræmi við lög og reglur Reykjavíkurborgar.

Fríðindi í starfi

Stytting vinnuvikunnar, 36 stunda vinnuvika fyrir fullt starf.

Sundkort, ókeypis aðgang að öllum sundlaugum Reykjavíkurborgar.

Menningarkort sem veitir ókeypis aðgang að söfnum borgarinnar.

Samgöngustyrkur.

Líkamsræktarstyrkur.

Frítt fæði sem boðið er uppá á matartímum skólans.

Starfsmannaafsláttur af leikskólagjöldum fyrir starfsmenn Reykjavíkurborgar.

Auglýsing birt30. september 2026
Umsóknarfrestur14. október 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Grænahlíð 24, 105 Reykjavík
Stakkahlíð 19, 105 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.Teymisvinna
Starfsgreinar
Starfsmerkingar