

Þjónustuver - þjónustufulltrúi
Þjónustuver - þjónustufulltrúi
Öryggismiðstöðin auglýsir eftir metnaðarfullum þjónustufulltrúa í Þjónustuver til að leysa fjölbreytt verkefni í skemmtilegu teymi.
Æskilegt að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst, um er að ræða fullt starf.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Símsvörun og afgreiðsla erinda
- Úrvinnsla fyrirspurna af vef
- Þátttaka í fjölbreyttum verkefnum þjónustuvers
- Móttaka og þjónusta við viðskiptavini
- Ýmis önnur verkefni
Menntunar- og hæfniskröfur
- Framúrskarandi samskiptahæfileikar
- Frábærir hæfileikar til að vinna í hóp
- Rík þjónustulund og jákvæðni
- Sjálfstæð, öguð og nákvæm vinnubrögð
- Mjög góð íslensku- og enskukunnátta
- Góð tölvukunnátta (Microsoft office 365)
- Reynsla og þekking á NavisionNavision / Business central kostur
- Reynsla/þekking á CRM kerfi sé kostur
- Reynsla úr þjónustu- eða símaveri kostur
Helstu verkefni og ábyrgð
Helstu verkefni eru afgreiðsla erinda, móttaka viðskiptavina, símsvörun.
Um er að ræða fullt starfá samhentum, traustum og metnaðarfullum vinnustað.
Vinnutími er frá kl. 08-16 virka daga.
Umsóknarfrestur er til og með 24.8.2026
Umsókn skal senda inn í gegnum ráðningarvef. Með umsókn þarf að fylgja ferilskrá. Nánari upplýsingar veitir Björgvin Jóhannsson verkefnastjóri í gegnum netfangið [email protected]
Farið verður með allar umsóknir sem trúnaðarmál. Vakin er athygli á því að allir starfsmenn Öryggismiðstöðvarinnar þurfa að skila inn sakavottorði.
Öryggismiðstöðin er framsækið þjónustufyrirtæki sem býður upp á fjölbreyttar lausnir og þjónustu í öryggis-og velferðartækni, fyrir einstaklinga og fyrirtæki.
Hjá Öryggismiðstöðinni starfar öflugur hópur sérfræðinga sem býr yfir brennandi áhuga, faglegri þekkingu og mikilli reynslu af þjónustu við viðskiptavini. Við leggjum ríka áherslu og metnað í gæði ráðgjafar við val á lausnum. Hornsteinar þjónustu okkar er öflug tækniþjónusta ásamt rekstri vaktmiðstöðvar til móttöku viðvörunarboða og útkallsþjónusta öryggisvarða allan sólarhringinn, alla daga ársins.
Við leggjum áherslu á vandaða og persónulega þjónustu með gildi fyrirtækisins að leiðarljósi, forystu, umhyggju og traust.
Íslenska










