Sjúkrahúsið á Akureyri
Sjúkrahúsið á Akureyri
Sjúkrahúsið á Akureyri

Þjónustustjóri endurhæfingar- og öldrunarlækningaþjónustu Sjúkrahússins á Akureyri

Laus er til umsóknar staða þjónustustjóra við endurhæfingar- og öldrunarlækningaþjónstu Sjúkrahússins á Akureyri. Um er að ræða 100% stöðu í dagvinnu og er staðan laus nú þegar eða samkvæmt samkomulagi.

Undir endurhæfingar- og öldrunarlækningarþjónustu falla endurhæfingar- og öldrunarlækningar, sjúkraþjálfun, iðjuþjálfun, félagsráðgjafaþjónusta, sálfræðiþjónusta, talmeinaþjónusta og endurhæfingardeild

Þjónustan fer fram á legu- og dagdeildum ásamt göngudeildum og felur starfsemin í sér teymisvinnu sem byggir á markvissri samvinnu sjúklings, fjölskyldu og meðferðaraðila. Starfsstöð þjónustustjóra er á endurhæfingardeild þar sem megin hluti þjónustunnar fer fram.

Næsti yfirmaður er Erla Björnsdóttir, framkvæmdastjóri mannauðssviðs.

Helstu verkefni og ábyrgð

Þjónustustjóri hefur umboð í samræmi við stjórnskipulag SAk til að annast framkvæmd tiltekinna þátta sem yfirmaður einingarinnar í samræmi við nánari ákvörðun framkvæmastjóra sviðsins. Hann ber þrískipta ábyrgð á rekstri hennar, það er faglega, rekstrarlega og starfsmannalega. Þjónustustjóri ber ásamt framkvæmdastjóra og öðrum stjórnendum sviðs ábyrgð á stefnumótun og eftirfylgd, fjárhagsáætlanagerð og rekstri sviðs.   
Auk þess ber hann ábyrgð á að eiga samráð við aðra stjórnendur einingar vikulega með áherslu á upplýsingagjöf, flæði sjúklinga og samþættingu þjónustu/verkferla og að upplýsa um verkefni og þróun. Hann sinnir stöðumati og styður við flæðisstýringu á sviðinu og samþættir áhættumat þjónustunnar og leggur fram áhersluþætti árlega.  

Þjónustustjóri gerir þjónustutengda framleiðsluáætlun þar sem það á við í samráði við framkvæmdarstjóra og aðra stjórnendur sviðs og framfylgir henni. Hann leiðir og skipuleggur starfsemi innan síns sviðs í samræmi við framtíðasýn og stefnu SAk í samvinnu við framkvæmdastjóra sviðs. Þjónustustjóri samræmir og stuðlar að samvinnu allra starfsstétta innan og milli sviða undir forystu framkvæmdastjóra. Hann ber ábyrgð á gæðum þjónustu innan sviðs í samræmi við gæðastefnu SAk.  
   
Þjónustustjóri ber ábyrgð á samþættingu vísinda, mennta og gæða innan sviðs. Hann ber ábyrgð á mönnun og ráðningum innan sviðs í samráði við framkvæmdastjóra ásamt öðrum stjórnendum með samstarf að leiðarljósi. Þjónustustjóri tryggir að allir starfsmenn innan ábyrgðarsviðs hafi viðeigandi hæfni til að sinna starfi sínu og styður við símenntun þeirra. Hann ber ábyrgð á að farið sé eftir samningum, lögum og reglugerðum.

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólamenntun (meistarapróf) sem nýtist í starfi.  
  • Háskólamenntun með áherslu á stjórnun er kostur.  
  • Reynsla af klínísku starfi er kostur.  
  • Reynsla af stjórnun, verkefnastjórnun, framúrskarandi hæfni á sviði samskipta og samvinnu, frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum er skilyrði. 
  • Hæfni og geta til að starfa í teymi. 
  • Faglegur metnaður, frumkvæði, samstarfshæfni og jákvætt hugarfar.  
  • Sjálfstæði í vinnubrögðum og gott vald á íslensku og ensku. 
  • Hæfileiki til að tileinka sér nýjungar og miðla upplýsingum til ólíkra hópa er kostur. 
  • Færni í gagnrýnni hugsun. 
  • Gerð er krafa um vammleysi, s.s. að vera með gott orðspor og að framkoma og athafnir á vinnustað og utan hans samrýmist starfinu. 
Auglýsing birt4. febrúar 2026
Umsóknarfrestur9. febrúar 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Eyrarlandsvegur, 600 Akureyri
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.BreytingastjórnunPathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.LeiðtogahæfniPathCreated with Sketch.MannauðsstjórnunPathCreated with Sketch.TeymisvinnaPathCreated with Sketch.Verkefnastjórnun
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar