

Þjónustustjóri á Egilsstöðum
Viltu hjálpa okkur að gleðja viðskiptavini og móta framtíðina!
Við leitum að jákvæðum og framsýnum leiðtoga til að leiða teymi, veita framúrskarandi þjónustu og stuðla að jákvæðu og árangursríku starfsumhverfi í útibúi Arion á Egilsstöðum.
Um er að ræða fjölbreytt og spennandi hlutverk þar sem viðkomandi mun bera ábyrgð á starfsemi útibúsins með áherslu á framúrskarandi þjónustu, tækninýjungar og stöðugar umbætur. Það skiptir okkur máli að finna kraftmikinn leiðtoga sem er tilbúinn að koma sér vel inn í agað og árangursdrifið vinnuumhverfi og starfa sem hluti af öflugri liðsheild. Viðkomandi þarf að hafa brennandi áhuga á þjónustu, vera metnaðarfullur og árangurs- og söludrifinn.
- Ber ábyrgð á þjónustu við viðskiptavini Arion í ólíkum þjónustuleiðum
-
Mótar og innleiðir árangursdrifna stefnu sem sameinar þjónustugæði, söluárangur og stöðugar umbætur í starfseminni
-
Sinnir útlánum og ráðgjöf til einstaklinga
-
Hefur mannaforráð, stýrir daglegum verkefnum og veitir endurgjöf á frammistöðu
-
Tekur þátt í verkefnum þvert á samstæðuna og önnur verkefni í samráði við yfirmann
-
Framúrskarandi samskipta- og leiðtogahæfni
-
Reynsla í að leiða teymi, byggja upp árangursdrifna menningu og ná settum markmiðum
-
Skipulagshæfni, sjálfstæði í vinnubrögðum og gagnrýnin hugsun
-
Reynsla af útlánum er kostur en ekki skilyrði
-
Brennandi áhugi á framþróun og tæknilausnum
- Háskólamenntun eða víðtæk reynsla sem nýtist í starfi
Íslenska
Enska

