Bera hf.
Bera hf.

Þjónustustjóri

Við leitum að öflugum og lausnamiðuðum þjónustustjóra til liðs við okkur í vöruhús Beru.Bera er móðurfélag öflugrar samstæðu fyrirtækja á sviði drykkjarvöru- og matvælaframleiðslu, innflutnings og dreifingar. Dótturfélög Beru eru m.a. Ölgerðin og Danól. Bera rekur stórt og tæknilegt vöruhús með u.þ.b 100 starfsmönnum sem sjá um móttöku og afgreiðslu pantana til viðskiptavina.Þjónustustjóri gegnir mikilvægu hlutverki í daglegum rekstri vöruhúss og dreifingar og er tengiliður við meðal annars bílstjóra, söluteymi og aðrar einingar fyrirtækisins.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Dagleg þjónusta við vöruhús, dreifingu og aðra innri viðskiptavini
  • Verkumsjón og forgangsröðun pantana
  • Samskipti og þjónusta við sölumenn og bílstjóra
  • Stuðningur við stjórnendur og aðra hagaðila
  • Eftirfylgni með gæða-, öryggis- og þjónustumálum
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Reynsla af þjónustu og/eða sölu
  • Góð íslenskukunnátta, bæði í töluðu og rituðu máli er nauðsynleg
  • Reynsla af stjórnun eða verkstjórn er kostur
  • Góð tölvukunnátta
  • Framúrskarandi samskipta- og skipulagshæfni
  • Sjálfstæð, nákvæm og lausnamiðuð vinnubrögð
  • Rík þjónustulund og hæfni til að takast á við fjölbreytt verkefni
Auglýsing birt21. september 2026
Umsóknarfrestur5. október 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Grjótháls 7-11, 110 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar