
Þjónusturáðgjafi
Reykjavíkurborg leitar eftir jákvæðum einstaklingi með ríka þjónustulund til þess að aðstoða borgarbúa og starfsfólk Reykjavíkurborgar við margvísleg málefni. Þjónusturáðgjafi er andlit Reykjavíkurborgar út á við og hagar vinnu sinni í samræmi við þjónustustefnu Reykjavíkurborgar.
Í þínu starfi sem þjónusturáðgjafi munt þú veita íbúum upplýsingar um þjónustu borgarinnar og kemur umsóknum, ábendingum og fyrirspurnum í réttan farveg. Þú munt nýta til þess fjölbreyttar samskiptaleiðir en þá helst í gegnum síma, netspjall, beiðnakerfi og afgreiðslu í Höfðatorgi og Ráðhúsi. Framlínan er hluti af þjónustu- og nýsköpunarsviði Reykjavíkurborgar og við leggjum mikla áherslu á lausnamiðaða hugsun og notendamiðaða nálgun við úrlausn verkefna. Um er að ræða 100% starf tímabundið í eitt ár með möguleika á framlengingu.
Sem þjónusturáðgjafi munt þú...
- Veita ráðgjöf um þjónustu borgarinnar til viðskiptavina og starfsfólks í gegnum síma, netspjall, beiðnakerfi, tölvupóst og í afgreiðslu
- Sinna móttöku, afgreiðslu og aðgangsstýringu fyrir gesti og starfsfólk Höfðatorgs og Ráðhúss
- Aðstoða við rafrænar umsóknir
- Úrvinnsla ábendinga
Sem þjónusturáðgjafi munt þú einnig vinna þvert á öll svið Reykjavíkurborgar og hafa mikil og góð samskipti við starfsfólk, íbúa og aðra hagsmunaaðila borgarinnar.
- Stúdentspróf eða sambærileg menntun
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi kostur
- Reynsla af framlínu og/eða þjónustustörfum er æskileg
- Reynsla og áhugi á teymisvinnu
- Rík þjónustulund og jákvæðni
- Hæfni og áhugi á samskiptum
- Frumkvæði og lausnamiðuð hugsun
- Geta til að vinna undir álagi
- Íslenska B2 skv. samevrópska tungumálarammanum er skilyrði
- Gott vald á ensku í töluðu og rituðu máli
- Góð almenn tölvukunnátta
- Jákvætt viðhorf til jafnréttis og fjölbreytileika.
Enska
Íslenska










