

Þjónustufulltrúi - Geðheilsuteymi taugaþroskaraskana HH
Við leitum að jákvæðum og drífandi einstaklingi til að koma til liðs við okkur.
Heilsugæslan á höfuðborgarsvæðinu óskar eftir að ráða þjónustufulltrúa til starfa hjá Geðheilsuteymi taugaþroskaraskana. Starfið er fjölbreytt og í góðu starfsumhverfi sem er í stöðugri þróun. Um er að ræða 50% ótímabundið starf en möguleiki er að auka starfshlutfall með tímanum. Æskilegt að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst eða eftir nánara samkomulagi.
Geðheilsuteymi taugaþroskaraskana sinnir einstaklingum, 18 ára og eldri með þroskahömlun og klínískan geðrænan vanda og/eða krefjandi hegðun. Skjólstæðingar teymisins hafa oft á tíðum annan fjölbreytilegan taugaþroska og/eða sjúkdóma. Áhersla er lögð á þverfaglegt starf og unnið er þvert á stofnanir heilbrigðis- og velferðarþjónustu á landsvísu.
Ef þú hefur áhuga á að starfa í öflugu þverfaglegu teymi sem sinnir samfélagsgeðþjónustu með áherslu á gott samstarf og jákvæðan starfsanda, er þetta tækifæri sem vert er að skoða.
Þjónustufulltrúi starfar þvert á allar fagstéttir og þjónustar þær eftir þörfum. Verkefni þjónustufulltrúa eru fjölbreytt, til dæmis:
- Símsvörun og móttaka skjólstæðinga
- Vinnsla, skönnun og útsending gagna
- Móttaka gagna og skráning
- Svörun erinda í tölvupósti
- Almenn upplýsingagjöf um starfsemi stöðvarinnar
- Önnur tilfallandi verkefni
- Nám sem nýtist í starfi
- Reynsla af sambærilegu starfi og/eða skrifstofustarfi æskileg
- Reynsla af Sögukerfi er æskileg
- Reynsla af Heilsuveru er æskileg
- Hæfni og lipurð í mannlegum samskiptum
- Góð almenn tölvukunnátta
- Góð íslenskukunnátta, bæði rituð og töluð
- Góð almenn enskukunnátta er æskileg
- Heilsustyrkur
- Samgöngustyrku
Íslenska
















