Johan Rönning
Johan Rönning
Johan Rönning

Þjónustu og sölufulltrúi óskast til Johan Rönning

Johan Rönning óskar eftir að ráða öflugan starfsmann í þjónustu og sölustarf í verslun sína að Klettagörðum 25. Um 100% starf er að ræða og er vinnutími samkomulag.

Starfið er fjölbreytt og lifandi og krefst ríkrar þjónustulundar og færni í mannlegum samskiptum.

Johan Rönning er í dag hluti af Fagkaup ehf. sem rekur einnig verslunar- og þjónustufyrirtækin Sindra, Vatn & veitur, S. Guðjónsson, Áltak, K.H. Vinnuföt, Varma og Vélaverk, Ísleif, Hagblikk, Fossberg, K. Þorsteinsson og co og DS Lausnir.

Höfuðstöðvar félagsins eru við Klettagarða 25 í Reykjavík en starfseiningar eru víða t.d. á Akureyri, á Selfossi, Grundartanga, Reyðarfirði, Reykjanesbæ, Hafnafirði og Kópavogi. Rúmlega 300 starfsmenn vinna hjá Fagkaupum í fjölbreyttum störfum ólíkra starfsstöðva og fyrirtækja.

Ef þú ert tilbúin/n að veita frábæra þjónustu til viðskiptavina og með reynslu af sölu og þjónustustörfum þá gæti þetta verið rétta starfið fyrir þig.

Umsóknarfrestur er ti 10.okt. 2026

Farið er með umsóknir sem trúnaðarmál og hvetjum við áhugasama að sækja um óháð aldri, kyni eða uppruna.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Almennt afgreiðslustarf og móttaka viðskiptavina í verslun 
  • Tiltekt pantana
  • Áfyllingar í verslun 
  • Tiltekt og önnur tilfallandi verkefni 
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Rík þjónustulund
  • reynsla af þjónustu og/ eða sölustarfi er kostur
  • Stundvísi og góð framkoma
  • Góð íslenskukunnátta
  • Frumkvæði og sjálfstæði
  • Snyrtimennska
  • 20 ára aldurstakmark 
  • Öguð og vönduð vinnubrögð 
Fríðindi í starfi
  • Líkamsræktarstyrkur 
  • Samgöngustyrkur til umhverfisvænna ferðamáta 
  • Niðurgreiddur hádegismatur 
  • Öflugt starfsmannafélag

Að auki bjóðum við: 

  • Góðan vinnustað þar sem lögð er rækt við vellíðan og vöxt starfsfólks
  • Frábæra vinnufélaga og góðan starfsanda
  • Árlega heilsufarsskoðun og heilsueflingu 
  • Afsláttarkjör af vörum félagsins 
  • Sveigjanlegt starfsumhverfi 
  • Ýmsa viðburði á vegum fyrirtækisins ásamt virku starfsmannafélagi 
Auglýsing birt23. september 2026
Umsóknarfrestur10. október 2026
Tungumálahæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Klettagarðar 25, 104 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.HársnyrtiiðnPathCreated with Sketch.LagerstörfPathCreated with Sketch.RafvélavirkjunPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.SnyrtimennskaPathCreated with Sketch.Þjónustulund
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar