

Talmeinafræðingur - Geðheilsumiðstöð barna
Hefur þú áhuga á að taka þátt í starfi með börnum og unglingum með taugaþroskafrávik og/eða geðrænan vanda?
Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins leitar að talmeinafræðingi til starfa hjá Geðheilsumiðstöð barna. Starfað er í þverfaglegu teymi, við ráðgjöf, greiningu og meðferð barna með taugaþroskafrávik og/eða geðrænan vanda Kennsla og ráðgjöf til annarra fagaðila ásamt vísindastörfum verður einnig mikilvægur hluti af starfinu.
Geðheilsumiðstöð barna (GMB) veitir 2. stigs heilbrigðisþjónustu á landsvísu fyrir fjölskyldur með börn frá meðgöngu að 18 ára aldri. Miðstöðin sinnir greiningu, ráðgjöf og meðferð vegna geð- og þroskavanda barna og unglinga ásamt því að styðja við tengslamyndun foreldra og barna frá 0-5 ára. Starfshópur GMB er þverfaglegur og vinnur eftir markvissu skipulagi með fagleg gæði að leiðarljósi. Áhersla er á gott viðmót og fjölskyldumiðaða þjónustu. GMB á reglulegt samstarf við þjónustuveitendur víðsvegar um landið og sinnir starfsþjálfun háskólanema á sviðinu.
Um er að ræða 100% ótímabundið starf, ráðið er í starfið frá 1. janúar nk. eða eftir nánara samkomulagi.
Talmeinafræðingur starfar í þverfaglegu teymi við greiningu, ráðgjöf barna með taugaþroskafrávik og/eða geðrænan vanda. Talmeinafræðingur leggur mat á málþroska, samskiptafærni og aðra færniþætti sem tengjast tali og máli með stöðluðum próf- og matstækjum og klínískum athugunum. Talmeinafræðingur veitir ráðgjöf og eftirfylgd eftir þörfum og tekur virkan þátt í umbótastarfi og þróun þjónustu.
- Íslenskt starfsleyfi sem talmeinafræðingur
- Þekking og/eða reynsla sem nýtist í starfi
- Sérþekking á málþroska barna/unglinga
- Sérþekking á málþroskaröskun DLD æskileg
- Mjög góð samskipta- og samstarfshæfni og færni til að starfa í teymi
- Skipulagshæfni, frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
- Góð færni til að tjá sig í ræðu og riti á íslensku
- Góð almenn enskukunnátta æskileg
Heilsustyrkur
Samgöngustyrkur
Íslenska







