Securitas
Securitas
Securitas

Tæknisvið Securitas á Austurlandi

Securitas Austurlandi leitar að jákvæðu og lausnamiðuðu tæknifólki!

Starfið felur í sér fjölbreytta tækniþjónustu á öryggis- og brunaviðvörunarkerfum, ásamt uppsetningum og forritun á aðgangstýrikerfum, myndavélum og eftirlitsbúnaði.

Við leggjum ríka áherslu á vönduð vinnubrögð, jákvætt hugarfar, framúrskarandi þjónustu, sjálfstæð vinnubrögð og góðan liðsanda.

Securitas á Austurlandi er ört vaxandi vinnustaður með frábæran starfsanda og samhentan hóp starfsfólks. Við leggjum ríka áherslu á árvekni, hjálpsemi og heiðarleika og erum stolt af því að vera hluti af sterku teymi Securitas á Íslandi.

Ef þú...

  • hefur brennandi áhuga á tækninýjungum og góða almenna tækniþekkingu
  • sýnir frumkvæði í starfi og metnað til að takast á við krefjandi verkefni
  • býrð yfir þjónustulund og hæfni í mannlegum samskiptum
  • hefur gott vald á talaðri og skrifaðri íslensku
  • ert með sveinspróf í rafvirkjun eða rafeindavirkjun er það kostur

... þá gætum við verið að leita af þér!

Í boði er fullt starf, þar sem tækifæri er til að vaxa og þróast í starfi.

Starfið hentar öllum kynjum sem eru með hreint sakavottorð og gilt ökuskírteini. Umsóknarfrestur er til og með 15.júlí. Nánari upplýsingar veitir Guðjón Birgir Jóhannsson, útibússtjóri, í síma 580-7000.

Auglýsing birt25. júní 2025
Umsóknarfrestur15. júlí 2025
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Strandgata 2, 735 Eskifjörður
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.Almenn ökuréttindiPathCreated with Sketch.Almenn tæknikunnáttaPathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.HandlagniPathCreated with Sketch.HeiðarleikiPathCreated with Sketch.Hreint sakavottorðPathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.RafvirkjunPathCreated with Sketch.Þjónustulund
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar