
Ölgerðin
Lykillinn að velgengni fyrirtækja er að hluta fólginn í mannauði þeirra.
Við drögum að og höldum hæfasta starfsfólkinu með hvetjandi fyrirtækjamenningu án fordóma og með áherslu á jafna möguleika. Hjá fyrirtækinu starfar fjölbreyttur hópur af skapandi og framsæknu fólki. Sjálfbærni er samofin menningu, við eyðum allri sóun og nýtum okkur stafræna tækni til umbóta sem skapar okkur samkeppnisforskot.
Við sinnum hverjum viðskiptavini og birgja eins og hann væri okkar eini og setjum aðeins þau vörumerki á markað sem eru, eða hafa möguleika á að vera, fremst í sínum flokki.
Við erum keppnis, gerum hlutina fyrr og betur en aðrir og leggjum metnað í að skapa eftirsóttasta vinnustað landsins.
Markmið Ölgerðarinnar er að hafa yfir að ráða vel menntuðu, hæfu og áhugasömu starfsfólki sem sameiginlega skapar metnaðarfullt og jákvætt vinnuumhverfi. Starfsfólk Ölgerðarinnar stefnir samstíga í átt að framtíðarsýn fyrirtækisins, að verða fyrsta val viðskiptavina og neytenda. Fjölbreyttur bakgrunnur starfsmanna gerir vinnustaðinn skemmtilegan.

Tæknimaður – Ölgerðin Akureyri
Við leitum að duglegri og jákvæðri manneskju til að sinna hreinsunum og fyrirbyggjandi viðhaldi, ásamt minniháttar viðgerðum á tæknibúnaði Ölgerðarinnar á Akureyri.
Vinnutími er jafnan frá 8-16 en getur verið lengri eftir dögum.
Hlutverk og ábyrgð
- Hreinsanir, fyrirbyggjandi viðhald og minniháttar viðgerðir á dælubúnaði
- Önnur tilfallandi störf sem koma upp.
Hæfniskröfur
- Rík þjónustulund og öguð sjálfstæði í vinnubrögðum.
- Almennt verkvit, útstjónrasemi og reynsla af minni háttar viðgerðum kostur.
- Stundvísi og góð framkoma.
- Góð samskiptahæfni, samviskusemi og jákvæðni.
- Góð íslensku- og ensku kunnátta.
- Geta unnið undir álagi.
- Reglusemi og snyrtimennska.
- Bílpróf.
- Hreint sakarvottorð er skilyrði.
Umsóknarfrestur er til og með 7. október nk.
Við hvetjum fólk af öllum kynjum að sækja um.
Auglýsing birt23. september 2026
Umsóknarfrestur7. október 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Strandgata, 600 Akureyri
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (1)
Sambærileg störf (11)

Tæknimaður í afgreiðslulausnum
Wise lausnir ehf.

Tæknistarf á Reykjanesi
Securitas

Tæknimaður
STOÐ

Standsetningar nýrra tækja
BRP - Ellingsen

Klæðskeri / kjólameistari
Borgarleikhúsið

Multivac Tæknimaður
Multivac ehf

Skoðunarmanneskja á björgunarbúnaði
Viking Life-Saving Equipment Iceland ehf.

Starfsmaður í þjónustudeild
Ölgerðin

Bifvélavirkjar óskast
ÍSBAND (Íslensk-Bandaríska ehf)

Bifvélavirki / bifreiðasmiður í jeppabreytingar óskast
ÍSBAND (Íslensk-Bandaríska ehf)

Starfsmaður í Þjónustudeild
Landstólpi ehf