
KONE ehf.
KONE ehf. er faglegt og traust alþjóðlegt fyrirtæki í eigu KONE Corporation sem er leiðandi fyrirtæki í heiminum í framleiðslu og þjónustu á fólkslyftum og rennistigum. KONE ehf. var stofnað 1994 á Íslandi en móðurfélagið í Finnlandi 1910. Frá upphafi hefur verið stöðugur vöxtur hjá fyrirtækinu og í dag eru KONE lyftur og rennistigar á stöðum eins og Flugstöðinni, Smáralind, Hörpu, Kringlunni helstu hótelum og háhýsum landsins. Allir stærstu byggingaverktakar landsins eru á meðal viðskiptavina KONE ehf. Fyrirtækið hefur á að skipa reyndu starfsfólki í ráðgjöf, sölu, uppsetningum og þjónustu á lyftum og rennistigum. Hjá okkur starfa td. rafiðnfræðingar, vélfræðingar, rafvirkjar og vélvirkjar á góðum vinnustað.

Tæknimaður
KONE ehf. óskar eftir að ráða jákvæðan og þjónustulipran tæknimann sem er tilbúinn til að takast á við krefjandi og skemmtilegar áskoranir með góðri liðsheild á góðum vinnustað. Viðkomandi kemur til með að starfa innan þjónustudeildar KONE í nánu samstarfi með tæknistjóra og þjónustustjóra. Starfið býður upp á góða möguleika til að þróast í þá átt sem viðkomandi sýnir styrkleika, td. stjórnun, kennslu og utanumhald.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Bilanagreining og prófanir
- Ráðgjöf og leiðbeiningar til viðskiptavina
- Viðgerðir á lyftum
- Viðgerðir á rennistigum
- Þjónustueftirlit skv. gæðaferlum
Menntunar- og hæfniskröfur
- Menntun á sviði rafmagnsiðnfræði, rafvirkjunar, véliðnfræði, vélfræði eða önnur sambærileg menntun sem nýtist í starfi og/eða reynsla á sambærilegu starfssviði
- Góður skilningur á rafmagni, tölvum og stýringum er kostur
- Sjálfstæð, nákvæm, öguð og lausnamiðuð vinnubrögð
- Þjónustulund, sveigjanleiki og lipurð í mannlegum samskiptum
Auglýsing birt28. maí 2026
Umsóknarfrestur3. júní 2026
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Lyngháls 5, 110 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Rafvirki eða rafvirkjanemi með reynslu
Rafsveinn ehf

Sérfræðingur í iðnstýringum
EFLA hf

Rafvirki - Vélstjóri - Vélvirki
Heitirpottar.is

Söluráðgjafi véladeildar
Samhentir

Electrical Designer
Borealis Data Center ehf.

Við leitum að rafvirkja eða rafeindavirkja í samsetningu á rafbúnaði og vogum
JBT Marel

Leiðtogi málm- og véltæknigreina
Iðan fræðslusetur

Hafðu stjórn á straumnum - sérfræðingur stjórnkerfa
Rarik ohf.

Söluráðgjafi rafbúnaðar hjá Johan Rönning í Reykjanesbæ
Johan Rönning

Kennarar við Tækniskólann - raftæknigreinar
Tækniskólinn

Commissioning Manager
atNorth

Tengdu þig við okkur - rafvirki á Hvolsvelli
Rarik ohf.