

Sumarstörf - Sjúkraliðar og sjúkraliðanemar á bráðamóttöku
Heilbrigðisstofnun Suðurlands óskar eftir að ráða sjúkraliða og sjúkraliðanema á Bráðamóttöku HSU Selfossi í sumarafleysingu.
-
Um er að ræða hjúkrun sjúklinga á bráðamóttöku HSU þar sem öll bráðatilvik koma inn. Sjúklingar tilheyra öllum aldurshópum og koma hvenær sem er sólarhringsins, sem gerir bráðamóttökuna að spennandi vinnustað með mikið af lærdómstækifærum.
-
Um er að ræða fjölbreytt starf með skemmtilegu og metnaðarfullu starfsfólki.
-
Mikið er lagt upp úr góðri samvinnu allra starfshópa þar sem fagmennska, umhyggja og virðing fyrir skjólstæðingum og fjölskyldum þeirra er höfð að leiðarljósi.
-
Um er að ræða vaktavinnu.
-
Sjúkraliðanám frá viðurkenndri menntastofnun eða staðfesting á framvindu náms
-
Starfsleyfi landlæknis
-
Sjúkraliðanemar þurfa að hafa lokið: Almenn bókleg hjúkrun og verkleg grunnhjúkrun
-
Góð hæfni í mannlegum samskiptum
-
Frumkvæði, áreiðanleiki og jákvætt viðhorf
-
Reynsla af vinnu á bráðamóttöku er kostur
Íslenska














