Menningarstofa
Menningarstofa
Menningarstofa

Sumarstarfsmenn safna Menningarstofu Fjarðabyggðar

Fjarðabyggð auglýsir sumarstörf safna Menningarstofu laust til umsókna.

Menningarstofu rekur Safnahúsið á Norðfirði sem hýsir Sjóminja og smiðjumunasafn Jósafats Hinrikssonar, Náttúrugripasafn Austurlands, Málverkasafn Tryggva Ólafssonar, Sjóminjasafn Austurlands, Íslenska Stríðsárasafnið og Frakkar á Íslandsmiðum.
Menningarstofu hefur sett sér markmið til næstu fimm ára um uppbyggingu safnanna í Fjarðabyggð þar sem lögð er áhersla á eflingu þeirra og er hafin uppbygging á endurnýjun Íslenska stríðsárasafnsins.

Leitað er að einstaklingum með brennandi áhuga fyrir miðlun sagnaarfs sveitarfélagsins og almennu safnastarfi.

Sumarstörfin eru fyrst og fremst falin í leiðsögn gesta og gæslu sýninga en með tækifærum að vinna að fjölþættum og áhugaverðum verkefnum sem tengjast safnamálum í samstarfi við teymi starfsmanna menningarstofu.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Almenn afgreiðsla og símsvörun.
  • Leiðsögn og móttaka gesta í sýningarhúsum.
  • Annast skráningu safngesta.
  • Annast móttöku aðgangseyris og daglegt uppgjör.
  • Annast sölu varnings á vegum safnsins.
  • Aðstoð við uppsetningu viðburða
  • Annast þrif á safnrýmum og sér til þess að sýningin sé ávallt hrein og til fyrirmyndar.
  • Vinnur með samstarfsmönnum að upplýsingagjöf til viðskiptavina safnsins
  • Vinnur með safnateymi að skráningu safnmuna og í öðrum skilgreindum verkefnum
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Stúdentspróf eða sambærileg menntun. Háskóla- eða fagmenntun sem nýtist í starfi er kostur.
  • Reynsla af safnastarfi, skráningu, afgreiðslu- og/eða þjónustustarfi er mikilvæg.
  • Góð almennt tölvukunnátta kostur. 
  • Góð kunnátta í íslensku og ensku er áskilin.
  • Hæfni til að miðla upplýsingum í töluðu máli kostur.
  • Sjálfstæði, frumkvæði og skipulagshæfni.
  • Hæfni í mannlegum samskiptum.
Auglýsing birt5. febrúar 2026
Umsóknarfrestur8. mars 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
EnskaEnska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Þiljuvellir 11, 740 Neskaupstaður
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.AfgreiðslaPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.Þjónustulund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar