

Sérfræðingur á skrifstofu menningar og skapandi greina
Laus er til umsóknar staða sérfræðings á skrifstofu menningar og skapandi greina í menningar, nýsköpunar og háskólaráðuneyti með áherslu á inngildingu og aðgengi að menningu og listum. Starf sérfræðings felst í undirbúningi og framfylgd áætlana sem snúa að lista- og menningarstarfsemi sem heyrir undir ráðuneytið og krefst mikilla samskipta við forsvarsfólk lista- og menningarstofnana. Sérfræðingurinn kemur að gagnaöflun, úrvinnslu og greiningum, undirbúningi lagasetningar, stefnumótun, áætlanagerð, fjárhagsáætlunum, verkáætlunum og eftirfylgni. Hann þarf að eiga í miklum samskiptum við hagaðila bæði innanlands og erlendis. Viðkomandi leiðir samningagerð við fjölmargar stofnanir og hagaðila fyrir hönd ráðuneytisins og svarar fyrirspurnum sem ráðuneytinu berast.
- Leiðandi hlutverk í stefnumótun í málefnum menningar og skapandi greina með áherslu á aukið aðgengi allra að menningu, óháð búsetu og efnahag.
- Öflun og úrvinnsla gagna ásamt ritun greinargerða og minnisblaða í tengslum við stöðu menningarmála og skapandi greina.
- Tengiliður við nánar tilgreindar stofnanir ráðuneytisins á sviði menningar og lista.
- Samskipti við innlenda og erlenda hagaðila í listum og menningu.
- Ráðgjöf í málaflokknum innan ráðuneytis.
- Aðkoma að undirbúningi lagasetningar og rýni á lagaumgjörð menningar.
- Þátttaka og ábyrgð á öðrum sérfræðiverkefnum eftir atvikum.
- Þátttaka í starfshópum, nefndum og ráðum sem fulltrúi ráðuneytisins, bæði innanlands og erlendis.
- Aðstoð við framkvæmd viðburða á vegum ráðuneytisins.
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi.
- Framúrskarandi samskiptafærni ásamt reynslu og innsýn í menningu, listir og skapandi greinar.
- Reynsla af gagnaöflun, úrvinnslu gagna og skýrslugerð. Reynsla af vinnu með menningartölfræði er kostur.
- Reynsla af því að vinna í verkefnum tengdum barnamenningu og aðgengi að menningu er kostur.
- Reynsla af stefnumótun og áætlanagerð á sviði menningar og skapandi greina.
- Reynsla af verkefnastjórnun.
- Þekking og reynsla á sviði opinberrar stjórnsýslu er kostur.
- Metnaður og vilji til að ná árangri.
- Alþjóðleg þekking eða reynsla sem nýtist í starfi.
- Skipulagsfærni, frumkvæði, sjálfstæði í vinnubrögðum, sveigjanleiki og geta til að vinna fjölbreytt verkefni undir álagi.
- Gott vald á íslensku og ensku og færni til að tjá sig í ræðu og riti. Gott vald á norrænu tungumáli kostur.
Íslenska
Enska





