Höldur ehf. - Bílaleiga Akureyrar
Höldur ehf. - Bílaleiga Akureyrar
Höldur ehf. - Bílaleiga Akureyrar

Sumarstarf í afgreiðslu - Reykjavík

Við erum að leita að jákvæðu og þjónustulunduðu fólki sem vill sinna skemmtilegu og fjölbreyttu starfi hjá Bílaleigu Akureyrar á höfuðborgarsvæðinu. Starfsstöðvarnar okkar eru í Skútuvogi og á Njarðargötu.

Þetta er frábært tækifæri fyrir ungt fólk sem vill safna verðmætri reynslu í þjónustu, samskiptum og teymisvinnu á lifandi og skemmtilegum vinnustað.

Unnið er skv. 2-2-3 vaktafyrirkomulagi. Um sumarstarf er að ræða með möguleika á áframhaldandi starfi næsta haust og vetur.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Móttaka og þjónusta við viðskiptavini 
  • Útleiga og móttaka á bílum 
  • Upplýsingagjöf, sala og ráðgjöf til viðskiptavina 
  • Ferjanir á bílum 
  • Fjölbreytt tilfallandi verkefni 
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Frábær þjónustulund
  • Jákvætt og lausnamiðað hugarfar 
  • Góður liðsfélagi 
  • Gott vald á íslensku og ensku
  • Góð almenn tölvukunnátta
  • Bílpróf (líka á beinskipta bíla)
Höldur - Bílaleiga Akureyrar

Höldur ehf. var stofnað árið 1974 og rekur Bílaleigu Akureyrar, stærstu bílaleigu landsins með um 8.000 bíla flota.  Bílafloti leigunnar er bæði stór og fjölbreyttur og hefur fyrirtækið verið leiðandi í kaupum á umhverfisvænum bílum.

Höldur kappkostar að vera framúrskarandi vinnustaður þar sem umhyggja er borin fyrir sérhverjum starfsmanni. Með áherslu á gleði, jafnrétti, gott starfsumhverfi, starfsþróun og góða fyrirtækjamenningu er skapaður eftirsóknarverður vinnustaður.

Hlunnindi
  • Afsláttur af bílaleigubílum  
  • Niðurgreiddur hádegismatur  
  • Möguleiki á áframhaldandi starfi eftir sumarið  
Auglýsing birt9. febrúar 2026
Umsóknarfrestur22. febrúar 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
EnskaEnska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Skútuvogur 8, 104 Reykjavík
Fluggarðar skýli 23, 101 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.HeiðarleikiPathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.ÖkuréttindiPathCreated with Sketch.SamviskusemiPathCreated with Sketch.Þjónustulund
Vinnuumhverfi
Hentugt fyrir
Starfsgreinar
Starfsmerkingar