Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær

Sumarstarf hjá vatns- og fráveitu Hafnarfjarðar

Hafnarfjarðarbær leitar að sumarstarfsmanni til starfa við vatns- og fráveitu Hafnarfjarðar í 100% starf í sumar.

Leitað er að ábyrgum og lausnamiðuðum aðila sem hefur áhuga á verklegum störfum og leggur metnað í góða umgengni og samstarf. Aðilinn ber ábyrgð á öllum áhöldum og búnaði sem unnið er með og að öll umgengni sé til fyrirmyndar. Starfið tilheyrir umhverfis- og skipulagssviði, sem er með aðsetur að Norðurhellu 2, þar sem áhersla er á fagmennsku og öryggi.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Viðhald og eftirlit með veitukerfum bæjarins í samstarfi við aðra starfsmenn vatns- og fráveitu
  • Þrif og viðhald á dælu- og lokahúsum
  • Málun brunahana og innan bygginga veitnanna
  • Önnur verkefni sem yfirmaður felur starfsmanni

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Reynsla af sambærilegu starfi kostur
  • Samstarfs- og samskiptahæfni, þjónustulund
  • Frumkvæði, sjálfstæði og skipulagshæfni
  • Geta til að vinna undir álagi
  • Hæfni til að aðlagast breyttum aðstæðum
  • Líkamlega fær um að sinna þeim verkefnum sem starfið felur í sér
  • Ökuréttindi
  • Íslenskukunnátta, A1 skv. samevrópskum tungumálaramma

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við Starfsmannafélag Hafnarfjarðar.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Gunnólfur Lárusson yfirverkstjóri í síma 664-5641 eða í gegnum tölvupóst: [email protected]

Umsóknarfrestur er til og með 25. maí 2026.

Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.

Auglýsing birt18. maí 2026
Umsóknarfrestur25. maí 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Grunnfærni
Staðsetning
Norðurhella 2, 221 Hafnarfjörður
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar