Dalvíkurbyggð
Dalvíkurbyggð
Dalvíkurbyggð

Sumarstarf hjá Söfnum og Upplýsingamiðstöð Dalvíkurbyggðar

Óskum eftir öflugum einstaklingi til að slást í hóp með okkur og starfa í fjölbreyttu og menningarlegu umhverfi í sumar. Um er ræða allt að 80% starfshlutfall auk möguleika á helgarvinnu. Æskilegt er að umsækjendur geti hafið störf í lok maí og geti unnið fram til ágústloka.
Starfsstöðvar sem um ræðir eru Bókasafn Dalvíkurbyggðar, Héraðskjalasafn Svarfdæla, Upplýsingamiðstöð fyrir ferðamenn og Menningarhúsið Berg. Starfsmaður/starfsmenn öðlast þannig innsýn í heim ferðaþjónustunnar og grunnþætti safnastarfs í sveitafélaginu um leið.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Almenn upplýsingagjöf til ferðamanna um afþreyingu, þjónustu og gönguleiðir í sveitarfélaginu.
  • Þátttaka, utanumhald og aðkoma að skipulagningu ýmissa viðburða á vegum safnanna og Menningarhússins Bergi.
  • Móttaka viðskiptavina á bókasafni og ýmis tilfallandi verkefni í Menningarhúsinu Bergi.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Stúdentspróf eða önnur sambærileg menntun.
  • Góð tungumálaþekking í máli og riti. Íslenska og enska, skilyrði.
  • Góð tölvukunnátta og þekking á samfélagsmiðlum.
  • Rík þjónustulund.
  • Frumkvæði og metnaður í starfi.
  • Sveigjanleiki og vilji til að ganga í ólík verkefni og læra á ný forrit.
  • Að geta unnið minnst einn laugardag í mánuði.
  • Reynsla af safnastarfi og upplýsingagjöf er mikill kostur.

    Ofangreindar hæfniskröfur eru ekki í áhersluröð. Auk þeirra hæfniskrafna sem tilgreindar eru er leitað að lausnamiðuðum og metnaðarfullum einstaklingum með góða samskiptafærni.
Auglýsing birt31. mars 2026
Umsóknarfrestur14. apríl 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Meðalhæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Dalvík , 620 Dalvík
Starfstegund
Hentugt fyrir
Starfsgreinar
Starfsmerkingar