
Kóraskóli
Kóraskóli er nýr skóli við Vallakór í Kópavogi sem tók til starfa haustið 2023. Í skólanum eru um 280 nemendur í 8. – 10. bekk og um 30 starfsmenn. Skólinn var áður unglingastig Hörðuvallaskóla sem hefur nú verið skipt upp í tvo sjálfstæða skóla. Í skólanum er lögð áhersla á skapandi og framsækið skólastarf og eru allir nemendur skólans með spjaldtölvur. Í námi og kennslu er rík áhersla lögð á einstaklingsmiðun náms, fjölbreytta kennsluhætti, leiðsagnarnám, verkefnamiðað nám, samþætt þemanám, teymiskennslu og samkennslu.
Í Kóraskóla er lögð áhersla á að við berum virðingu fyrir hvert öðru sem nemendur, foreldrar og starfsfólk. Öll eiga rétt á að njóta öryggis, vera laus við stríðni, meiðingar, hrekki og einelti. Kóraskóla hefur það að markmiði að skapa nemendum og starfsfólki góðan vinnustað þar sem öll geta notið sín í góðum vinnufriði með hlýlegu andrúmslofti.

Stuðningsfulltrúi í Kóraskóla
Við í Kóraskóla leitum eftir áhugasömum stuðningsfulltrúa til að taka þátt í skólastarfinu með okkur.
Kóraskóli tók til starfa haustið 2023. Í skólanum eru 230 nemendur í 8.-10. bekk og um 40 starfsmenn. Í skólanum er lögð áhersla á skapandi og framsækið skólastarf og eru allir nemendur skólans með spjaldtölvur. Í námi og kennslu er rík áhersla á einstaklingsmiðun náms og fjölbreytta kennsluhætti.
Við leitum eftir stuðningsfulltrúa í 80% starf sem er tilbúinn til að vinna í samhentum hóp þar sem áherslan er á samstarf og samvinnu. Starf stuðningsfulltrúa miðar að því að auka færni og sjálfstæði nemenda.
Ráðið verður í stöðuna sem fyrst.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Aðstoðar nemendur við nám og virka þátttöku í skólastarfi
- Aðstoðar við faglegt starf undir leiðsögn kennara og stjórnenda
- Stuðlar að velferð nemenda í samstarfi við fagfólk og foreldra
- Styður nemendur í félagslegum samskiptum innan og utan kennslustunda
- Vinnur samkvæmt stefnu skólans
- Annast önnur þau störf sem honum kunna að vera falin af yfirmanni og falla undir eðlilegt starfssvið hans
Menntunar- og hæfniskröfur
- Gott vald á íslensku er skilyrði
- Samstarfs og samskiptahæfileikar
- Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
- Dugnaður, jákvæðni og ábyrgarkennd
- Reynsla af starfi með ungmennum æskileg
- Uppeldismenntun sem nýtist í starfi er kostur
- Almenn tölvukunnátta
Fríðindi í starfi
Starfsmenn Kópavogsbæjar fá frítt í sundlaugar bæjarins
Auglýsing birt5. október 2026
Umsóknarfrestur14. október 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Vallakór 14, 203 Kópavogur
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (10)

Stuðningsfulltrúi óskast
Helgafellsskóli

Stuðningsfulltrúi óskast við Eskifjarðarskóla
Eskifjarðaskóli

Stuðningsfulltrúi óskast í Þorláksskóla
Þorláksskóli

Stuðningsfulltrúi
Suðurbæjarskóli ehf.

Leikskólakennari - leikskólinn Geislabaugur
Leikskólinn Geislabaugur

Stuðningsfulltrúi óskast við Rimaskóla
Rimaskóli

Starfsmaður á leikskóla, fullt starf
Seltjarnarnesbær

Leikskólakennari/kennari
Seltjarnarnesbær

Stuðningsfulltrúi með börnum með sérþarfir – starf sem skiptir máli
Arnarskóli

Stuðningsfulltrúi í frístund – Barnaskóli Kársness
Barnaskóli Kársness