

Leikskólakennari - leikskólinn Geislabaugur
Leikskólinn Geislabaugur er 5 deilda leikskóli með 107 börnum. Aðal áhersla er lögð á að börnunum líði vel og blómstri í leikskólanum. Við horfum til hugmyndafræði Reggio Emilia þar sem börnum er gefið frelsi til sköpunar og leiks í fallegu og hvetjandi umhverfi.
Leikskólinn er í innleiðingu nýju menntastefnu Reykjavíkurborgar með aðaláherslu á félagsfærni og sjálfseflingu þar sem við styðjumst við jákvæðan aga sem við erum einnig að innleiða. Einkunnarorð og gildi leikskólans eru virðing-sköpun-gleði-jafnrétti.
Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er.
Að vinna að uppeldi og menntun leikskólabarna samkvæmt starfslýsingu leikskólakennara, þ.m.t. að taka þátt í skipulagningu faglegs starfs og foreldrasamstarfi undir stjórn deildarstjóra.
- Leikskólakennaramenntun og leyfisbréf kennara.
- Reynsla af uppeldis- og kennslustörfum með börnum.
- Lipurð og sveigjanleiki í samskiptum og starfi.
- Frumkvæði í starfi og faglegur metnaður.
- Sjálfstæði og skipulögð vinnubrögð.
- Íslenskukunnátta á stigi B1 samkvæmt evrópska tungumálarammanum
- Menningarkort
- Samgögnustyrkur
- Sundkort
- Heisuræktarstyrkur
- 36 stunda vinnuvika fyrir fullt starf
Íslenska










