
Stuðningsfulltrúi á yngsta stig óskast í Rimaskóla
Rimaskóli auglýsir eftir hressum stuðningsfulltrúum í 70-75% starf.
Rimaskóli er heildstæður grunnskóli frá 1. – 10.bekk og eru nemendur rúmlega 500. Skólinn er hjartað í hverfinu og hefur á að skipa glæsilegt húsnæði og skólalóð. Skólinn er þekktur fyrir frábæran árangur í skák og hafa fjölmargir nemendur skólans fengið viðurkenningu á því sviði. Skólinn er með stefnuna Uppeldi til ábyrgðar og áherslan er sú að vinna með hvernig nemendur bera ábyrgð á eigin hegðun.
Menntunar- og hæfnikröfur:
- Frumkvæði, sjálfstæði og faglegur metnaður
- Góð færni í samvinnu og samskiptum
- Hugmyndaauðgi, jákvæðni og sveigjanleiki
- Hreint sakavottorð
- Mjög góð íslenskukunnátta
Umsóknarfrestur er til og með 10. mars. 2025 en ef hæfur einstaklingur kemur í ljós fyrr þá viljum við ráðningu sem fyrst.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Þóranna Rósa Ólafsdóttir skólastjóri í síma 411-7720 eða á netfangið [email protected]. Um tímabundið starf fram til 15 júní 2026 er að ræða. Öllum umsóknum verður svarað. Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands ísl. sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags. Ráðið er í öll störf óháð kyni. Staðan er laus frá 1. mars 2026- 15. júní 2026.
- Stuðningur á yngsta stigi
- Frímínútnagæsla
- Sundrúta sem er skipt á milli aðila
- Félagsþjálfun nemenda
- Stúdentspróf er æskilegt
- Mjög góð íslenskukunnátta (Íslenskukunnátta á stigi B1 samkvæmt evrópska tungumálarammanum).
- Styrkleiki að hafa innsýn inn í krefjandi nemendur og geta tekist á við verkefni hverju sinni með alúð og þolinmæði.
Íslenska










