

Strætóbílstjórar í Reykjanesbæ
GTS ehf. leitar að öflugum og þjónustuliprum strætóbílstjórum til aksturs rafmagnsrútna í Reykjanesbæ.
Við bjóðum spennandi tækifæri til að taka þátt í uppbyggingu umhverfisvænna samgangna í sveitarfélaginu. Leitað er að ábyrgum og þjónustuliprum einstaklingum sem hafa ánægju af mannlegum samskiptum og vilja leggja sitt af mörkum til góðrar þjónustu við íbúa og gesti bæjarins.
Aka strætisvögnum af öryggi og fagmennsku samkvæmt áætlun.
Veita góða þjónustu og aðstoð við farþega.
Fylgjast með ástandi vagnsins og tilkynna bilanir.
Skrá óvenjuleg atvik og sinna upplýsingagjöf.
Tryggja öryggi og bregðast rétt við neyðartilvikum.
Umsjón og umhirða strætisvagna
Starfið krefst ökuréttinda fyrir stór farartæki (D-flokk) og réttindi til aksturs í atvinnuskyni (95)
Rík þjónustulund og liburð í mannlegum samskiptum
Stundvísi og reglusemi













