
Slökkvilið Fjarðabyggðar
Slökkvilið Fjarðabyggðar sinnir mikilvægu hlutverki í öryggis- og neyðarþjónustu sveitarfélagsins og er ávallt reiðubúið til að bregðast skjótt við þegar hættu ber að höndum. Hlutverk þess er að vernda líf, umhverfi og eignir samkvæmt lögum um brunavarnir.
er með starfstöðvar í sex byggðarkjörnum þar sem atvinnulið starfar samhliða hlutastarfandi slökkviliðs- og sjúkraflutningsmönnum.

Störf í hlutastarfandi slökkviliði - Breiðdalsvík
Slökkvulið Fjarðabyggðar auglýsir eftir starfsmönnum til að starfa við starfstöð slökkviliðsins á Breiðdalsvík
Helstu verkefni og ábyrgð
- Slökkvistörf
- Þátttaka í æfingum
- Umhirðu húss, tækja og búnaðar og annarri þeirri vinnu er fellur til á slökkvistöð
Menntunar- og hæfniskröfur
- Hafa náð 20 ára aldri
- Hafa góða líkamsburði, vera andlega og líkamlega heilbrigðir, reglusamir og háttvísir, hafa góða sjón og heyrn, rétta litaskynjun og vera ekki haldnir lofthræðslu eða innilokunarkennd.
- Æskilegt er að hafa gild ökuréttindi til að stjórna vörubifreið (C-réttindi)
- Umsækjendur þurfa að standast læknisskoðun og þrekpróf.
- Góð samskiptahæfni og geta til að vinna undir álagi.
- Góðir líkamsburðir, andlegt- og líkamlegt heilbrigði
- Almenn reglusemi og háttvísi
- Menntun og/eða reynsla af starfi slökkviliðs- og/eða sjúkraflutningamanna er kostur.
- Vera með hreint sakarvottorð
- Vera búsettur á Breiðdalsvík
Auglýsing birt11. mars 2026
Umsóknarfrestur1. apríl 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Selnes 3-5, 760 Breiðdalsvík
Starfstegund
Hæfni
Hreint sakavottorðÖkuréttindiSnyrtimennska
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (2)

