Norðurþing
Norðurþing

Slökkviliðsstjóri

Norðurþing auglýsir laust til umsóknar starf slökkviliðsstjóra.

Leitað er að öflugum og reynslumiklum einstaklingi til að leiða fjölbreytta starfsemi slökkviliðsins. Í Norðurþingi eru þrjár slökkvistöðvar, á Húsavík, á Kópaskeri og á Raufarhöfn. Slökkviliðið er mjög vel tækjum búið og býr yfir sterkum starfsmannahópi með víðtæka þekkingu og reynslu.

Slökkviliðsstjóri er ráðinn af sveitarstjórn og heyrir beint undir sveitarstjóra í skipuriti sveitarfélagsins. Um 100% framtíðarstarf er að ræða.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Dagleg stjórn og ábyrgð á rekstri slökkviliðsins
  • Ábyrgð á faglegri starfssemi, ráðningum, fræðslu og þjálfun slökkviliðsmanna
  • Umsjón húsnæðis, tækja og bíla
  • Umsjón með almennum brunavörnum og eldvarnareftirliti, úttektir, umsagnir og eftirfylgni
  • Stjórn slökkvistarfs og annarra útkallsverkefna
  • Áætlanagerð og stefnumótun
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Löggilding sem slökkviliðsmaður sbr. 17. gr. laga nr. 75/2000 og að lágmarki þriggja ára reynsla í slökkviliði sem löggiltur slökkviliðsmaður eða hafa háskólamenntun með sérmenntun í brunamálum.
  • Hafa lokið námi sem eldvarnaeftirlitsmaður sbr. 12. gr. reglugerðar nr. 792/2001 um Brunamálaskólann og réttindi og skyldur slökkviliðsmanna.
  • Sjúkraflutningamenntun EMT-I eða EMT-A
  • Reynsla af rekstri og stjórnun
  • Reynsla og/eða haldgóð þekking á stjórnun slökkviliðs æskileg
  • Þekking á yfirferð og eftirliti tækja og búnaðar æskileg
  • Leiðtogafærni og rík færni í mannlegum samskiptum
  • Góð skipulagsfærni, árvekni og öguð vinnubrögð
  • Góð almenn tölvukunnátta
  • Góð íslenskukunnátta og hæfni til að tjá sig í ræðu og riti
  • Aukin ökuréttindi í ökuflokki C
Auglýsing birt17. mars 2026
Umsóknarfrestur7. apríl 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Norðurgarður 5
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.LeiðtogahæfniPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.SjúkraflutningarPathCreated with Sketch.Skipulag
Starfsgreinar
Starfsmerkingar