Gullskógar
Gullskógar

Starfsmaður óskast í verslun og heildverslun

Við leitum að öflugum og jákvæðum starfsmanni til liðs við okkur.

Við erum lítið fjölskyldu fyrirtæki sem flytur inn barnavörur og leikföng og rekum bæði eigin verslun og heildverslun með dreifingu um allt land. Starfið er fjölbreytt og hentar einstaklingi sem hefur gaman af því að takast á við mismunandi verkefni, vinna í góðum hópi og tækifæri til að vaxa í starfu

Helstu verkefni

  • Tiltekt pantana bæði fyrir heildsölu og fyrir netpantanir

  • Vörumóttaka og almenn lagerstörf

  • Afgreiðsla og þjónusta við viðskiptavini í verslun

  • Áfylling og framsetning vara

  • Almenn tilfallandi verkefni

  • Að leysa af samstarfsfólk eftir þörfum, meðal annars í sölu og þjónustu

Við leitum að einstaklingi sem

  • Er jákvæður, heiðarlegur og áreiðanlegur
  • Hefur frumkvæði og vinnur sjálfstætt

  • Snyrtilegur og með faglega framkoma
  • Er skipulagður og vandvirkur

  • Á auðvelt með mannleg samskipti og hefur ríka þjónustulund

  • Talar og skrifar góða íslensku

  • Hefur gild ökuréttindi

Við erum lítið fyrirtæki þar sem allir hjálpast að og taka þátt í þeim verkefnum sem þarf að leysa hverju sinni. Þess vegna leitum við að einstaklingi sem hefur gaman af fjölbreyttum verkefnum og er tilbúinn að taka þátt í bæði lagerstörfum, verslunarstörfum og öðrum verkefnum eftir þörfum. Starfið hentar því ekki þeim sem vilja eingöngu sinna einu afmörkuðu hlutverki.

Við bjóðum

  • Fjölbreytt og lifandi starf

  • Góðan vinnustað þar sem allir leggja sitt af mörkum

  • Skemmtilegt starfsumhverfi

  • Tækifæri til að hafa áhrif og taka ábyrgð

Um er að ræða fullt starf.

Vinnustaðurinn er reyk/vape- og tóbakslaus.

Ef þú hefur gaman af fjölbreyttum verkefnum og vilt verða hluti af litlu en metnaðarfullu teymi, þá viljum við heyra frá þér.

Helstu verkefni og ábyrgð

Helstu verkefni

  • Afgreiðsla og þjónusta við viðskiptavini í verslun
  • Tiltekt pantana bæði fyrir heildsölu og fyrir netpantanir

  • Vörumóttaka og almenn lagerstörf

  • Áfylling og framsetning vara

  • Almenn tilfallandi verkefni

  • Að leysa af samstarfsfólk eftir þörfum, meðal annars í heildsölu og þjónustu

 

Menntunar- og hæfniskröfur

Reynsla af sölustörfum er kostur

 

Fríðindi í starfi

Borgað fyrir farsímaáskrift

Auglýsing birt6. júlí 2026
UmsóknarfresturEnginn
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
EnskaEnska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Grænatún 1, 200 Kópavogur
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar