
SPAR
SPAR er alþjóðleg verslanakeðja með yfir 13.500 verslanir í meira en 50 löndum. Á Íslandi eru SPAR-verslanir reknar af Samkaupum og á næstu árum er stefnt að því að breyta Krambúðum, Kjörbúðum og 10–11 verslunum yfir í SPAR. SPAR leggur áherslu á góða þjónustu, ferskvörur og að mæta daglegum þörfum viðskiptavina með fjölbreyttu vöruúrvali og þægilegri verslunarupplifun.

Verslunarstjóri SPAR
SPAR leitar að jákvæðum, ábyrgðarfullum og kraftmiklum verslunarstjóra sem hefur brennandi áhuga á kaupmennsku, rekstri og mannlegum samskiptum. Um er að ræða fullt starf.
Verslunarstjóri ber ábyrgð á heildarrekstri verslunar, daglegri stjórnun og uppbyggingu teymis, ásamt því að taka virkan þátt í áframhaldandi þróun og styrkingu vörumerkisins SPAR.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Ábyrgð á rekstri verslunar, rekstrarniðurstöðum og daglegri starfsemi
- Ábyrgð og umsjón með starfsfólki, þjálfun og uppbyggingu teymis
- Virk þátttaka í kaupmennsku, þar á meðal verðmálum, vöruvali og framboði
- Stuðla að áframhaldandi þróun og uppbyggingu vörumerkisins Prís
- Tryggja framúrskarandi þjónustu og jákvæða upplifun viðskiptavina
- Samskipti við viðskiptavini, birgja og samstarfsaðila
- Ábyrgð á vöruframsetningu og áfyllingum
- Ábyrgð á birgðahaldi og lágmörkun rýrnunar
- Önnur tilfallandi verkefni
Menntunar- og hæfniskröfur
- Menntun í viðskipta- eða verslunarfræðum mikill kostur
- Marktæk reynsla af stjórnun hjá verslunar- og/eða þjónustufyrirtæki
- Styrkleiki í mannlegum samskiptum, sjálfstæð vinnubrögð, skipulagshæfni og reglusemi
Fríðindi í starfi
- Heilsustyrkur
- Afsláttarkjör í verslunum Samkaupa
- Velferðarþjónusta Samkaupa
Auglýsing birt6. júlí 2026
UmsóknarfresturEnginn
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Hagasmári 1, 201 Kópavogur
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Sölufulltrúi í verslun - framtíðarstarf
Bræður & Co ehf.

Söluverktaki í símasölu
Sérsveitin ehf.

Verslunarstjóri
Samasem ehf

Hlutastarf á Akureyri
Flying Tiger Copenhagen

Sölufulltrúar óskast í fyrirhugaða verslun okkar á Keflavíkurflugvelli.
ICEWEAR

Liðsauki í vöruhús
Ískraft

Deildarstjóri málningardeildar í Húsasmiðjunni Akureyri
Húsasmiðjan

Erum við að leita af þér?
Beautybar Kringlunni

Night Security Services for Vaktað & Vaskað at Sbarro locations and SPAR stores
sbarro

Næturvarsla fyrir Vaktað & Vaskað á Starfsstöðum Sbarro og í SPAR verslunum
sbarro

Starfsmaður í vöruhúsi
Halldór Jónsson ehf

Starfsmaður í afgreiðslu og áfyllingar - Krónan Mosfellsbær
Krónan