Malbikstöðin
Malbikstöðin
Malbikstöðin

Starfsmaður í malbikun og vörubílaakstur

Malbikstöðin óskar eftir að ráða starfsmann í 100% stöðu í malbikun og vörubílaakstur. Um fjölbreytt starf er að ræða þar sem viðkomandi verður hluti af samstilltu teymi sem sinnir hinum ýmsu verkefnum. Malbikstöðin býður upp á fyrsta flokks tækjakost og þjálfun sem nauðsynleg er til að sinna starfinu (English below).

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Fjölbreytt verkefni í samstarfi við og undir leiðsögn verkstjóra
  • Vörubílaakstur
  • Handavinna og yfirborðsfrágangur
  • Ábyrgð á góðri umgengni og frágangi á verkstað
  • Fylgja öllum öryggiskröfum og reglum. Starfið telst sérstaklega áhættusamt vegna mikillar nálægðar við umferð og vinnuvélar

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Meiraprófsréttindi
  • Vinnuvélaréttindi er kostur
  • Reynsla af vinnu við malbikun eða hellulögn er kostur
  • Mikil öryggisvitund
  • Góð færni í mannlegum samskiptum
  • Hæfni til að vinna í teymi
  • Þjónustulund og jákvætt viðmót
  • Mjög góð líkamleg færni

Fríðindi í starfi

  • Líkamsræktarstyrkur
  • Vinnufatnaður
  • Hádegismatur

Um Malbikstöðina

Malbikstöðin var stofnuð árið 2004. Félagið hefur vaxið og dafnað vel frá stofnun þess en á árinu 2020 var reist ný framleiðslustöð fyrir malbik með áherslu á umhverfisvæna framleiðslu og endurvinnslu malbiks. Hjá fyrirtækinu starfa í dag um 60 manns við hin ýmsu störf. Félagið rekur tvö verkstæði, rannsóknarstofu, malbikshópa, fræshópa, malbiksframleiðslu, gæða- og umhverfiseftirlit, flotastýringu og skrifstofu. Nánari upplýsingar um Malbikstöðina má sjá á heimasíðu félagsins www.malbikstodin.is

Umsóknarfrestur er til og með 25. maí 2026 en unnið er úr umsóknum um leið og þær berast. Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.isog þarf henni að fylgja starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni umsækjanda sem nýtist í starfi. Áhugasamir aðilar, óháð kyni, eru hvattir til að sækja um starfið. Farið verður með allar umsóknir og fyrirspurnir sem trúnaðarmál og þeim svarað að ráðningu lokinni.

Nánari upplýsingar veita Lovísa Kristín Þórðardóttir ([email protected]) og Sigríður Svava Sandholt ([email protected]) í síma 511-1225.

--------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------

Asphalt Paving and Truck Driver

Malbikstöðin is seeking to hire an employee for a full-time (100%) position in asphalt paving and truck driving. This is a varied and hands-on role whithin a well coordinated team working on diverse projects. Malbikstöðin provides first class equipment and thorough training to ensure employees are well prepared for the job.

Main tasks and responsibilities

  • Diverse tasks in collaboration with and under the supervision of a site manager
  • Truck driving
  • Manual work and surface finishing
  • Responsibility for maintaining a clean and well-organized worksite
  • Comply with all safety requirements and regulations. The role is considered particularly high‑risk due to close proximity to traffic and heavy machinery

Qualifications and skills

  • Valid heavy vehicle driver‘s license
  • Machinery operation license is an advantage
  • Experience in asphalt paving or paving stone installation is an advantage
  • Strong safety awareness
  • Good interpersonal and communication skills
  • Ability to work effectively as part of a team
  • Service minded attitude and positive demeanor
  • Very good physical fitness

Employee benefits

  • Fitness allowance
  • Work clothing provided
  • Lunch provided

For further information, please contact Lovísa Kristín Þórðardóttir ([email protected]) and Sigríður Svava Sandholt ([email protected]) at tel. 511‑1225.

Auglýsing birt6. maí 2026
Umsóknarfrestur25. maí 2026
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Flugumýri 26
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.Meirapróf CPathCreated with Sketch.Meirapróf CEPathCreated with Sketch.Meirapróf DEPathCreated with Sketch.TeymisvinnaPathCreated with Sketch.VinnuvélaréttindiPathCreated with Sketch.Þjónustulund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar