Útisport
Útisport
Útisport

Starfsmaður í hluta - og sumarstarf á Akureyri

Við leitum að jákvæðum og þjónustulunduðum einstaklingi til starfa í verslun okkar á Glerártorgi. Um er að ræða vinnu á laugardögum frá kl. 10:00 – 14:00 og vinnu á virkum dögum skv. samkomulagi. Starfið hentar vel fyrir nema. Vinnutíminn yfir sumarið er frá kl. 10:00 – 18:00 og annan hvorn laugardag frá kl. 10:00 – 14:00.

Ef þú vilt vinna í líflegu og skemmtilegu starfsumhverfi, þar sem hjólreiðar eru í aðalhlutverki og góð þjónusta skiptir máli, þá er þetta tækifærið!

Helstu verkefni:

  • Afgreiðsla og þjónusta við viðskiptavini.
  • Áfylling í verslun og vörumóttaka.
  • Samsetning og viðgerðir á hjólum.
  • Ýmis lagerstörf og frágangur.

Við leitum að einstaklingi sem:

  • Hefur góða þjónustulund og reynslu af þjónustustörfum.
  • Er reyklaus og tilbúinn að takast á við fjölbreytt verkefni.
  • Hefur áhuga og þekkingu á hjólum og hjólreiðum, kostur en ekki skilyrði.

Áhugasamir eru hvattir til að senda umsókn ásamt ferilskrá í gegnum Alfred.is fyrir 8. mars.

Öllum umsóknum verður svarað.

Auglýsing birt27. febrúar 2026
Umsóknarfrestur8. mars 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Gleráreyrar 1, 600 Akureyri
Starfstegund
Hentugt fyrir
Starfsgreinar
Starfsmerkingar