
Bláa Lónið
Bláa Lónið er fjölbreyttur, spennandi en umfram allt skemmtilegur vinnustaður. Hjá okkur starfar fólk á öllum aldri, af ólíkum uppruna og í ólíkum störfum. Draumastarfið þitt gæti verið handan við hornið.
Undirstaðan í öllu því sem við gerum er að skapa góðar minningar fyrir gesti okkar. Það gerum við með því að hafa gleði og umhyggju að leiðarljósi, ásamt því að bera virðingu fyrir gestum okkar og hvert öðru.
Ánægja starfsmanna og ánægja gesta er samofin. Við leggjum okkur fram við að skapa góðan starfsanda og viðhorfskannanir staðfesta mikla starfsánægju. Við viljum að þér líði vel í vinnunni. Hjá okkur starfa fremstu matreiðslumenn landsins og starfsmenn fá að að njóta þess í fyrsta flokks mötuneyti. Það verður enginn svangur í vinnunni hjá Bláa Lóninu.
Við vinnum með fólki og fyrirtækjum af ólíkum toga. Starfsmenn njóta þessara tengsla. Sem dæmi má nefna kort í líkamsrækt, afslættir af ýmis konar vörum, þjónustu og afþreyingu.
Við ræktum félagslífið með skipulögðum hittingum utan vinnutíma. Við skemmtum okkur, ýmist öll saman eða innan einstakra sviða og deilda. Við erum stærri en þú kannski heldur. Hjá okkur starfa tæplega 700 manns með fjölbreyttan bakgrunn og reynslu. Við erum ólík, en lærum af hvort öðru. Saman myndum við öfluga heild.

Starfsmaður í Framleiðslu
Framleiðslustarf í rannsókna- og þróunarsetri Bláa Lónsins í Svartsengi. Við leitum að ábyrgum og lausnamiðuðum einstaklingi sem hefur áhuga á fjölbreyttum verkefnum tengdum framleiðslu, rekstri búnaðar og lagerumsjón.
Helstu verkefni
- Framleiðsla á hráefnum úr jarðsjó Bláa Lónsins; kísil, salt og örþörunga.
- Dagleg umsjón með lögnum og tækjabúnaði.
- Áfyllingar og pökkun.
- Lager- og lyftaravinna.
- Dagleg þrif og frágangur, bæði innan- og utandyra.
- Önnur tilfallandi verkefni.
Hæfniskröfur
- Lyftararéttindi er kostur.
- Reynsla af sambærilegum störfum eða verkefnum er kostur.
- Hæfni til að sinna fjölbreyttum tækjabúnaði.
- Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð ásamt góðri samskiptahæfni.
- Frumkvæði, tæknileg hugsun og áhugi á að þróa vinnuferla með markvissri nýtingu búnaðar og tæknilausna til aukinnar skilvirkni.
- Góð íslensku-og enskukunnátta er skilyrði.
Umsóknarfrestur er til 16.október.
Bláa Lónið er lifandi og skemmtilegur vinnustaður þar sem áhersla er lögð á sífellda þróun og nýsköpun. Í boði er starf á vinnustað sem býður upp á fjölbreyttar og krefjandi áskoranir. Einnig eru ýmis fríðindi í boði, svo sem heilsuræktarstyrkur, þátttaka í einu öflugasta starfsmannafélagi landsins og fleira.
Bláa Lónið starfar samkvæmt vottaðri gæðastjórnun ISO 9001:2015, öryggisstjórnun ISO 45001 og umhverfisstjórnun ISO 14001.
Auglýsing birt30. september 2026
Umsóknarfrestur16. október 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Norðurljósavegur 9, 240 Grindavík
Starfstegund
Hæfni
FrumkvæðiSjálfstæð vinnubrögð
Starfsgreinar
Starfsmerkingar




