
Dekkjahöllin ehf
Dekkjahöllin – traust og reynsla í hjólbarðaþjónustu í yfir fjóra áratugi
Dekkjahöllin er framsækið þjónustufyrirtæki sem hefur sérhæft sig í sölu og þjónustu á hjólbörðum í yfir fjóra áratugi. Fyrirtækið rekur starfstöðvar á Draupnisgötu á Akureyri, Þverklettum á Egilsstöðum, Miðhrauni í Garðabæ, Njarðarbraut í Reykjanesbæ og í Skeifunni og Skútuvogi í Reykjavík. Á öllum stöðvum býðst fyrsta flokks hjólbarðaþjónusta, en til viðbótar eru reknar smurstöðvar á Akureyri og Egilsstöðum og þvottastöð á Akureyri. Dekkjahöllin er jafnframt öflugur innflutningsaðili á hjólbörðum frá Continental, Falken, Yokohama, Sonar og Triangle og þjónustar bæði fyrirtæki og einstaklinga um allt land.
Hjá Dekkjahöllinni starfar samheldinn hópur með mikla reynslu og þekkingu í faginu. Fjölmargir starfsmenn hafa fylgt fyrirtækinu í áratugi og samanlagður starfsaldur þeirra er til marks um gæði mannauðsins. Metnaður, þjónustulund og fagmennska eru lykilatriði í allri starfsemi, enda hefur fyrirtækið ávallt lagt áherslu á fljóta, góða og áreiðanlega þjónustu.
Við leggjum ríka áherslu á að skapa jákvæða og hvetjandi starfsmenningu sem einkennist af samvinnu, gleði og sveigjanleika. Í gegnum tíðina hefur starfsfólkið verið hornsteinn velgengni Dekkjahallarinnar og uppsöfnuð þekking þess tryggir viðskiptavinum faglega ráðgjöf og þjónustu á heimsmælikvarða.
Traust og árangur fyrirtækisins endurspeglast í viðurkenningum sem það hefur hlotið. Dekkjahöllin hefur verið valin framúrskarandi fyrirtæki af Creditinfo frá upphafi mælinga árið 2010 og hefur jafnframt verið útnefnt fyrirmyndarfyrirtæki í rekstri af Viðskiptablaðinu og Keldunni frá 2017.
Starfsmannafélag fyrirtækisins stuðlar að samheldni og jákvæðri stemningu með reglulegum viðburðum og ferðalögum. Þannig styrkjum við liðsheildina sem gerir Dekkjahöllina að traustum samstarfsaðila bæði fyrir einstaklinga og fyrirtæki.

Starfsmaður á hjólbarðaverkstæði á Akureyri
Dekkjahöllin óskar eftir að ráða starfsmann á hjólbarðaverkstæði, smurstöð og þvottastöð á Akureyri. Starfið felur í sér fjölbreytta vinnu við hjólbarðaþjónustu, smurþjónustu, bílaþvott og afgreiðslu. Um tímabundið starf er að ræða en einnig er möguleiki á framtíðarstarfi.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Fjölbreytt vinna við hjólbarða- og smurþjónustu ásamt afgreiðslu
Menntunar- og hæfniskröfur
- Áhugi og reynsla af bílaþjónustu kostur
- Stundvísi og hæfni í mannlegum samskiptum
- Íslenskukunnátta skilyrði
- 18 ára aldurstakmark
- Bílpróf
Auglýsing birt24. ágúst 2026
UmsóknarfresturEnginn
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Draupnisgata 5, 603 Akureyri
Starfstegund
Hæfni
HjólbarðaþjónustaSmurþjónustaStundvísi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (2)
Sambærileg störf (12)

Stöðvarstjóri á Ísafirði
Frumherji hf

Óskum eftir Bifvélavirkja i fullt starf
Bifreiðaverkstæðið Toppur ehf

Standsetningar
BRP - Ellingsen

Bifvélavirkjar - Askja Reykjanesbæ
Bílaumboðið Askja

Rafvirki - tæknimaður
Smith & Norland hf.

Frískt framtíðarfólk óskast hjá Vélrás - Viðgerðir
Vélrás

Vélvirki/Bifvélavirki á lyftaraverkstæði
Klettur - sala og þjónusta ehf

Bifvélavirki / Vélvirki Akureyri
Klettur - sala og þjónusta ehf

Bifvélavirki á vörubílaverkstæði Reykjavík
Klettur - sala og þjónusta ehf

Bifvélavirki á vörubílaverkstæði Hafnarfirði
Klettur - sala og þjónusta ehf

Bifvélavirki, vélvirki
Bílaverkstæði Hjalta ehf

Starfsmaður á verkstæði
Malbikstöðin