
Brynja ehf.
Ein af elstu ísbúðum landsins er staðsett bæði á Akureyri og Engihjalla. Við bjóðum uppá heimagerðan ís og vegan ís.
Starfsmaður á dagvaktir
Við leitum að hressum liðsfélaga í ísbúðina okkar! 🍦
Langar þig í skemmtilegt starf þar sem enginn dagur er alveg eins? Við leitum að jákvæðum og þjónustulunduðum starfsmanni til að sinna dagvöktum í ísbúðinni okkar.
Starfið felur meðal annars í sér:
- Afgreiðslu og þjónustu við viðskiptavini frá kl. 14:00–17:00/18.00, 2-3 virka daga í viku.
- Sinna aukaverkefnum 2–3 klukkustundir fyrir kl. 14:00, 2-3 daga í viku.
- Þrif á ísvélum.
- Þrif og umsjón með nammiborði.
- Umsjón með lager og öðrum tilfallandi verkefnum.
Möguleiki á auka kvöld-og helgarvöktum.
Við leitum að þér sem:
- Ert 18 ára eða eldri.
- Ert þjónustulunduð/þjónustulundaður og brosmild/ur.
- Ert samviskusöm/samviskusamur og tekur ábyrgð.
- Getur unnið sjálfstætt og hefur gaman af því að halda hlutunum snyrtilegum og í góðu lagi.
Við bjóðum upp á notalegan vinnustað, fjölbreytt verkefni og gott starfsumhverfi þar sem jákvætt viðmót og góð þjónusta skipta máli.
Auglýsing birt26. júlí 2026
Umsóknarfrestur5. ágúst 2026
Tungumálahæfni
EnskaNauðsyn
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Aðalstræti 3, 600 Akureyri
Starfstegund
Hæfni
Hreint sakavottorðReyklausSnyrtimennska
Hentugt fyrir
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Summer work at West Ranga lodge
Iceland Outfitters

Housekeeping part time 70-80% - SOUTH ICELAND
Panorama Glass Lodge

Starfsmaður í afgreiðslu
Smáríkið

Sales Advisor (10 - 15h) COS
COS

Lyfjaval - 100% dagvinna
Lyfjaval

Starfsmaður íþróttamannvirkja
Íþróttafélagið Grótta

Þjónustufulltrúi - Reykjavík
Höldur ehf. - Bílaleiga Akureyrar

Starfsfólk í loftstokkahreinsun
Hitatækni ehf

Afgreiðslustarfsmaður í Lyfjaval Hæðasmára
Lyfjaval

German speaking guide
Skógasafn

Staðarskáli - Hrútafirði
N1

Sölufulltrúi hjá Epli (hlutastarf)
Skakkiturn ehf