
Lyfjaval
Lyfjaval rekur sjö apótek, fimm á höfuðborgarsvæðinu, eitt á Selfossi og annað á Reykjanesinu. Okkar sérstaða er að vinna með bílalúgur sem veita okkur aukið svigrúm til nærgætni. Hjá okkur starfar öflugur og samhentur hópur sem hefur heilsu og hamingju að leiðarljósi.
Lyfjaval leggur metnað í að bjóða viðskiptavinum sínum lyf á lágmarksverði, þar sem fagmennska, heiðarleiki og nærgætni við viðskiptavini er í fyrirrúmi

Afgreiðslustarfsmaður í Lyfjaval Hæðasmára
Lyfjaval leitar að einstaklingi með ríka þjónustulund í 100% afgreiðslustarf í lyfjaverslun okkar við Hæðasmára.
Um afgreiðslu- og þjónustustarf er að ræða þar sem dag-, kvöld- og helgarvaktir koma til greina eftir samkomulagi.
Mikilvægt er að viðkomandi geti fljótlega hafið störf.
Eiginleikar sem við kunnum vel að meta eru:
- Reynsla af þjónustustarfi er kostur
- Rík þjónustulund og jákvætt viðhorf.
- Áhugi á heilsu og vellíðan
- Góð færni í mannlegum samskiptum
- Sjálfstæð vinnubrögð
Nánari upplýsingar veitir Oktavía Jóhannsdóttir, lyfsöluleyfishafi í Lyfjavali Hæðasmára, [email protected].
Helstu verkefni og ábyrgð
- Afhending lyfja gegn lyfseðli
- Ráðgjöf um notkun lausasölulyfja
- Ráðgjöf um val á öðrum vörum
- Þjónusta og almenn afgreiðslustörf
- Áfyllingar í verslun
Menntunar- og hæfniskröfur
- Reynsla af verslunarstörfum er kostur
- Stúdentspróf er vel metið
- Íslenskukunnátta er æskileg
- Gerð er krafa um hreint sakavottorð
Fríðindi í starfi
- Afsláttur af lausasölulyfjum og öðrum vörum
Auglýsing birt22. júlí 2026
UmsóknarfresturEnginn
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Hæðasmári 4, 201 Kópavogur
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

German speaking guide
Skógasafn

Staðarskáli - Hrútafirði
N1

Sölufulltrúi hjá Epli (hlutastarf)
Skakkiturn ehf

Security Officer - part time
The Reykjavik EDITION

Apótekarinn Selhellu - sala og þjónusta, framtíðarstarf
Apótekarinn

Flugstöð - Fullt starf. Vaktavinna
Penninn Eymundsson

Afgreiðsla í verslun
Klukkan

N1 Hvolsvöllur - vaktstjóri
N1

Söluráðgjafar H&M - Höfuðborgarsvæðið
H&M

Söluráðgjafar H&M - Akureyri
H&M

Þjónustufulltrúi - Móttaka
Icetransport

Metnaðarfullir einstaklingar í móttöku
Hreyfing