Heilbrigðisstofnun Suðurlands
Heilbrigðisstofnun Suðurlands
Heilbrigðisstofnun Suðurlands

Starfsfólk óskast í aðhlynningu á Móberg

Heilbrigðisstofnun Suðurlands óskar eftir að ráða starfsfólk í aðhlynningu til starfa á hjúkrunarheimilið Móberg, Selfossi. Starfsemi heimilisins byggir á hugmyndafræði Eden stefnunnar og lagt verður upp úr einstaklingsbundinni endurhæfingu íbúa í leik og starfi.

HSU veitir heilsugæslu-, sjúkrahús- og öldrunarþjónustu ásamt því að annast sjúkraflutninga. Þjónustusvæðið nær frá Þorlákshöfn í vestri til Hafnar í austri.

Hlutverk HSU er að móta, þróa og útfæra heilbrigðisþjónustu í umdæminu og tryggja íbúum Suðurlands og öðrum þjónustuþegum jafnan aðgang að bestu heilbrigðisþjónustu sem völ er á hverju sinni.

Þjónustumarkmið HSU byggja á gildum okkar um fagmennsku, virðingu og samvinnu. Velferð og þarfir þjónustuþega eru okkar leiðarljós.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Um er að ræða fjölbreytt starf með skemmtilegu og metnaðarfullu starfsfólki
  • Mikið er lagt upp úr góðu þverfaglegu samstarfi þar sem fagmennska, umhyggja og virðing fyrir skjólstæðingum og fjölskyldum þeirra er höfð að leiðarljósi
  • Um er að ræða vaktavinnu þar sem unnið er á þrískiptum vöktum og aðra hvora helgi. Skipulag vakta er í samráði við deildarstjóra
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Umsækjandi skal hafa náð 18 ára aldri.
  • Áhugi á að vinna með öldruðum.
  • Jákvætt viðhorf.
  • Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð.
  • Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum.
Auglýsing stofnuð29. apríl 2024
Umsóknarfrestur14. maí 2024
Tungumálakunnátta
ÍslenskaÍslenskaMeðalhæfni
Staðsetning
Árvegur 1, 800 Selfoss
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar