Seltjörn hjúkrunarheimili
Seltjörn hjúkrunarheimili
Seltjörn hjúkrunarheimili

Starfsfólk í aðhlynningu á hjúkrunarheimilinu Seltjörn á Seltjarnarnesi

Langar þig að vinna með skemmtilegu fólki, gera líf annarra innihaldsríkara og hafa raunveruleg áhrif í vinnunni? Þá er þetta starf eitthvað fyrir þig.Seltjörn hjúkrunarheimili leitar að öflugu framtíðarstarfsfólki í fjölbreytt umönnunarstarf. Um er að ræða fullt starf í vaktavinnu á blönduðum vöktum, en starfsfhlutfall er samkomulag.


Starfsfólk í umönnun sinnir fjölbreyttum verkefnum og er enginn vinnudagur eins. Starfað er náið með íbúum og þeir aðstoðaðir við allar daglegar athafnir svo sem við fataskipti, böðun, matmálstíma og félagslegan stuðning.
Helstu verkefni og ábyrgð

  • Aðstoða íbúa við allar athafnir daglegs lífs
  • Samstarf með öðrum fagstéttum svo sem hjúkrunarfræðingum, sjúkraþjálfara og iðjuþjálfa.


Menntunar- og hæfniskröfur

  • Góð færni í samskiptum
  • Sjálfstæði í starfi og stundvísi
  • Metnaður og öguð vinnubrögð
  • Góð kunnátta í íslensku.


Seltjörn er eitt þriggja hjúkrunarheimila rekið að Vigdísarholti ehf. Hjúkrunarheimilið opnaði í mars 2019 og er staðsett á vestanverðu Seltjarnarnesi í grennd við náttúruperluna Gróttu. Á Seltjörn eru fjögur tíu manna heimili sem skiptast í tvær einingar. Markmið Vigdísarholts er að veita framúrskarandi hjúkrun og auka lífsgæði fólks á síðustu árum ævinnar.

Greitt er samkvæmt kjarasamningum Samtaka fyrirtækja í velferðarþjónustu og Eflingar.
Allar frekari upplýsingar veitir Jóhanna Sigríður, gæða og mannauðsstjóri í tölvupósti [email protected]

Auglýsing birt23. nóvember 2026
Umsóknarfrestur4. desember 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Safnatröð 1, 170 Seltjarnarnes
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar