

Sjúkraþjálfari – spennandi starf í fjölbreyttu og hlýlegu umhverfi Seltjarnar
Sjúkraþjálfari óskast
Sjúkraþjálfari óskast á hjúkrunarheimilið Seltjörn Seltjarnarnesi. Starfið er laust frá og með 15. desember 2026 eða eftir nánara samkomulagi. Starfshlutfall er sveigjanlegt.
Starfið er fjölbreytilegt, krefst sjálfstæðra vinnubragða, lausnamiðaðrar hugsunar, sveigjanleika, og frumkvæðis. Viðkomandi þarf að hafa fullgilt íslenskt starfsleyfi sem sjúkraþjálfari og hafa gott vald á íslensku.
Helstu verkefni og ábyrgð
-Ábyrgð á sjúkraþjálfun heimilismanna
-Meta færni og veita / leggja upp viðeigandi meðferð
-Skráning og skýrslugerð. Notað er sjúkraskrárkerfið Saga
-Þátttaka í teymis- og hópastarfi
-Annast umsýslu hjálpartækja ásamt iðjuþjálfa
-Fræðsla til starfsfólks
-Tekur þátt í fagþróun
Við bjóðum upp á líflegt og skemmtilegt vinnuumhverfi á litlu og notalegu heimili þar sem fjölbreytt þjónusta og breiður hópur skjólstæðinga gerir starfið bæði krefjandi og gefandi. Sjúkraþjálfari vinnur náið með og í samstarfi með íþróttafræðingi heimilisins.
Við leggjum okkur fram um að styðja við jafnvægi milli vinnu og einkalífs, og að álag í starfi sé hæfilegt. Heitur matur í boði í hádeginu.
Nánari upplysingar veitir
Bryndísi F. Guðmundsdóttir sjúkraþjálfari, [email protected] s. 864-4605
Íslenska



