
Starf vélstjóra á hafnsögubát Þorlákshafnar
Þorlákshafnarhöfn auglýsir laust til umsóknar 100% starf vélstjóra.
Starfið er unnið í vaktavinnu.
• Vélstjórn á hafnsögubátum og umsjón með viðhaldi vélbúnaðar
• Að þjónusta skip og báta sem til Þorlákshafnar koma, viðlegustjórn
• Tenging og aftenging vatns og rafmagns til skipa og skráning aflesturs á notkun í afgreiðslubækur
• Annast viðhald á eignum og mannvirkjum hafnarinnar
• Eftirlit og umsjón með búnaði, tækjum og aðstöðu hafnarinnar og eftir atvikum öðrum stofnunum sveitarfélagsins.
• Ber ábyrgð á að afli sé rétt vigtaður og rétt skráður í aflaskráningarkerfið GAFL
• Umsjón með hafnarsvæði Þorlákshafnar, skipulagi, umgengni, hreinsun og tiltekt
• Öryggisgæsla á hafnarsvæðum og vinna að uppfærslu á öryggismálum hafnarinnar
• Umsjón með hafnarvernd
• Annast að auki ýmis verkefni sem hafnarstjóri felur honum og aðstoðar við festarþjónustu eftir því sem því verður við komið hverju sinni
• Góð samskiptafærni og jákvætt viðmót
• Vélstjórnarréttindi 1500 kw. að lágmarki
• Réttindi PFSO frá Siglingastofnun Íslands er kostur
• Slysavarnaskóli sjómanna
• Bílpróf og stærri vinnuvélaréttindi eru kostur
• Skipulagsfærni og nákvæmni í vinnubrögðum
• Góð almenn tölvukunnátta
• Góð íslensku- og enskukunnátta er nauðsynleg, önnur tungumál kostur
• Dugnaður, vinnusemi og sveigjanleiki
Íslenska
Enska










