
Sumarstörf hjá Sveitarfélaginu Ölfusi
Eftirfarandi sumarstörf eru laus til umsóknar hjá Sveitarfélaginu Ölfusi:
Umsóknareyðublöð eru á bæjarskrifstofum eða á eftirfarandi slóð: https://www.olfus.is/is/moya/formbuilder/index/index/umsokn-um-starf
Sendið umsókn á [email protected] eða skilið inn umsókn á bæjarskrifstofur Ölfus.
Umsóknarfrestur er til og með 15.03.2026
Störf hjá vinnuskólanum:
Yfirflokkstjóri vinnuskólans
· Yfirumsjón með flokkstjórum og vinnuhópum vinnuskólans ásamt umhverfisstjóra.
· Sér um daglegan rekstur vinnuskóla
· Almenn garðyrkjustörf o.fl. tengt vinnuskólanum (almenn garðyrkjustörf og umhirðu á stofnunum og opnum svæðum).
· Frumkvæði og góð mannleg samskipti.
· Æskilegt að vera með bílpróf.
· Krafist er stundvísi, ástundunar og dugnaðar.
· Lágmarksaldur 22 ára.
Flokkstjórar vinnuskólans
· Umsjón með vinnuhóp í vinnuskólanum.
· Flokkstjóri tekur þátt í þeim verkefnum sem hópurinn sinnir dags daglega.
· Almenn garðyrkjustörf o.fl. tengt vinnuskólanum (almenn garðyrkjustörf og umhirðu á stofnunum og opnum svæðum).
· Frumkvæði og góð mannleg samskipti.
· Krafist er stundvísi, ástundunar, dugnaðar.
· Lágmarksaldur 18 ára.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi FOSS og Samband íslenskra sveitarfélaga.
Daglegur rekstur vinnuskóla og umsjón með vinnuhóp
Bílpróf
Íslenska
