

Sölumaður vara- og aukahlutaverslun
Starfið felst í sölu og afgreiðslu vara- og aukahluta til viðskiptavina verslunar, verkstæðis og söludeildar. Sala til fyrirtækja með heimsóknum og í síma ásamt öðrum tilfallandi verkefnum verslunar. Um er að ræða fjölbreytt og skemmtilegt starf í vaxandi fyrirtæki og verslun í miklum vexti.
Verslunin flytur inn varahluti í þau vörumerki sem ÍSBAND hefur umboð fyrir sem eru Leapmotor, Jeep, RAM, FIAT, Dodge, Chrysler og Alfa Romeo og svo aukahluti frá mörgun þekktum vörumerkjum eins og AEV, Teraflex, Falcon, ARE og Bakflip sem fást í flestar gerðir bíla.
Í dag eru sjö starfsmenn í verslun og lager - 28 með verkstæði og þjónustu.
Samskipti við viðskiptavini
Sala og afgreiðsla til okkar verkstæða
Sala til fyrirtækja
Sala og afgreiðsla viðskiptavina í verslun
Samskipti við söludeild nýrra bíla
Lipurð í samskiptum og þjónustulund
Góð íslenskukunnátta
Bílpróf
Reynsla eða áhugi á bílum og varahlutum er kostur.
Öflugt starfsmannafélag
Góður hádegismatur
Íslenska










