Betra bak
Betra bak
Betra bak

Sölufulltrúi

Sölufulltrúi

Við leitum af reyndum og þjónustuliprum sölufulltrúa í fullt starf í verslun okkar að Faxafeni 5 í Reykjavík. Viðkomandi þarf að vera 25 ára eða eldri.

Við erum að leita af þér ef þú:

- ert dugleg/ur, með áhuga á heilsu og því að bæta líf þitt og annarra með frumkvæði þínu og metnaði

- ert sterk/ur í mannlegum samskiptum og kannt að skapa jákvæða upplifun með þjónustu

- elskar vörumerkið okkar, sýn okkar og gildi

- ert góður hlustandi og getur fundið úrlausnir fyrir gesti okkar

- ert skipulögð/lagður og vinnur vel í hóp

Okkur er umhugað að setja þarfir gesta okkar í fyrsta sæti við val á réttu rúmi svo þeir nái hámarks hvíld og vellíðan. Ráðgjafi hjá Betra baki sér um að fræða og bæta líf gesta okkar, setja þarfir þeirra í fyrsta sæti og byggja þannig upp langtíma viðskiptasamband.

Um er að ræða fullt starf mánudag til föstudags frá kl 10-18 og annan hvern laugardag frá kl 11-16

Nánari upplýsingar veitir Davíð Örn Ingason í síma 694 4664 og [email protected]

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Sala og ráðgjöf til viðskiptavina.
  • Byggja upp vöruþekkingu og miðla til viðskiptavina.
  • Vörumóttaka, talningar og merkingar.
  • Tiltekt, tilfærslur og framsetning á vörum í verslun.

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Reynsla af sambærilegum störfum.
  • Góðir söluhæfileikar og þjónustulund.
  • Góð kunnátta á tölvur og helstu forrit sem nýtast í starfi.
  • Skipulagshæfileikar, nákvæmni, sjálfstæð og öguð vinnubrögð.
  • Geta til að vinna undir álagi og bera ábyrgð.
  • Frumkvæði, jákvæðni og hæfni í samskiptum.
  • Góð íslensku- og enskukunnátta í ræðu og riti.
  • Reglusemi og áhugi á að bæta líf annarra.
Fríðindi í starfi
  • Góð laun í boði fyrir réttan einstakling
Auglýsing birt24. júní 2025
Umsóknarfrestur10. júlí 2025
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Faxafen 5, 108 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.Sölumennska
Starfsgreinar
Starfsmerkingar