
Málmsteypan
Málmsteypan er elsta starfandi endurvinnsla landsins og á sér yfir 80 ára sögu. Á þeim tíma hefur fyrirtækið þróast í takt við þarfir samfélagsins og er í dag eina járnsteypan á Íslandi og traustur samstarfsaðili í fráveitulausnum og innviðaverkefnum.
Kjarnastarfsemi Málmsteypunnar er að bjóða heildarlausnir í fráveitu. Við flytjum inn og seljum rör, brunna og tengihluti sem standast íslenskar aðstæður og endast í yfir 100 ár, samhliða okkar eigin framleiðslu á hágæða steypujárnsvörum þar sem brotajárn sem fellur til hérlendis er endurunnið í endingargóðar vörur.
Við störfum náið með verktökum, sveitarfélögum og byggingaraðilum um allt land og erum stolt af því að lausnir okkar liggi undir mörgum af stærstu framkvæmdum landsins. Sjálfbærni, áreiðanleiki og þjónusta eru leiðarljós okkar þegar við byggjum upp innviði framtíðar á Íslandi.

Söludrifinn starfsmaður í sölu og afgreiðslu óskast
Við erum rótgróið og öflugt fyrirtæki á sviði lagnavara og innviða þar sem þjónusta, fagmennska og áreiðanleiki eru leiðarljós í öllu okkar starfi. Við leitum að metnaðarfullum einstaklingi sem hefur brennandi áhuga á sölu og vill veita framúrskarandi þjónustu ásamt því að byggja upp og styrkja traust og langvarandi viðskiptasambönd. Starfið er fjölbreytt og krefjandi og býður upp á raunhæf tækifæri til ábyrgðar og vaxtar í öflugu teymi.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Þjónusta við viðskiptavini og fagleg ráðgjöf
- Byggja upp og viðhalda sterkum og traustum viðskiptasamböndum
- Tilboðsgerð og eftirfylgni
- Almenn afgreiðsla og sala
- Þátttaka í sölutengdum verkefnum og markaðsstarfi
Menntunar- og hæfniskröfur
- Áhugi og metnaður í sölu og þjónustu á fyrirtækjamarkaði
- Mjög góðir samskiptahæfileikar og lausnamiðað viðhorf
- Frumkvæði og skipulögð vinnubrögð
- Góð almenn tölvukunnátta
- Tækniþekking sem nýtist í starfi – iðn- eða tæknimenntun kostur
- Mikill kostur að hafa þekkingu á hitaveitu- og fráveitukerfum
- Þekking og áhugi á byggingamarkaði kostur
- Ökuréttindi (vinnuvélaréttindi kostur)
- Góð íslenskukunnátta skilyrði, bæði í ræðu og riti
Fríðindi í starfi
Við bjóðum
- Fjölbreytt og lifandi starf í öflugu teymi
- Tækifæri til að hafa áhrif og þróast í starfi
- Jákvætt og metnaðarfullt starfsumhverfi
- Samkeppnishæf kjör og árangurstengt bónuskerfi
Auglýsing birt26. febrúar 2026
Umsóknarfrestur31. mars 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Miðhraun 6, 210 Garðabær
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (1)
Sambærileg störf (12)

Starfsmaður íþróttamannvirkja
Íþróttafélagið Grótta

Lyfja Sauðárkróki - Umsjónarmaður verslunar
Lyfja

Lyfja Sauðárkróki - þjónusta og ráðgjöf
Lyfja

Starfsmaður í vöruhús - Sumarstarf
Mata

Metnaðarfullir einstaklingar í móttöku
Hreyfing

Sölu og markaðsmál - hlutastarf
Ráðlagður Dagskammtur

Tæknilegur verkefnastjóri
Farice ehf

Lyfja Seyðisfirði - þjónusta og ráðgjöf
Lyfja

Flugþjónusta/ Airline Catering Staff
Álfasaga ehf

Söluráðgjafi - fyrirtækjalausnir Creditinfo
Creditinfo

Við leitum að lyfjafræðinemum í Lyfjuliðið í sumar
Lyfja

Starfsmaður í gleraugnaverslun Eyesland Kringlunni
Eyesland Gleraugnaverslun