
Mosfell ehf.
Mosfell ehf. er byggingaverktaki sem sérhæfir sig í tjónaviðgerðum, viðhaldi og framkvæmdum mannvirkja. Fyrirtækið leggur áherslu á fagmennsku, áreiðanleika og góða þjónustu í öllum verkum.
Með skýrum verkferlum og markvissum vinnubrögðum tryggir Mosfell samræmda framkvæmd verkefna og leggur ríka áherslu á öryggi, gæði og góð samskipti við viðskiptavini og samstarfsaðila.
Smiður í fjölbreytta byggingarvinnu
Mosfell leitar að öflugum og smiði í fullt starf. Um er að ræða fjölbreytt verkefni tengd viðhaldi, endurbótum og tjónaviðgerðum, bæði innan- og utanhúss.
Við leitum að faglegum og áreiðanlegum einstaklingi sem getur unnið sjálfstætt, leyst ólík verkefni og unnið vel með öðrum. Við leggjum áherslu á fagmennsku, vönduð vinnubrögð og góðan starfsanda.
Við bjóðum upp á fullt starf, fjölbreytt verkefni og samkeppnishæf laun samkvæmt samkomulagi. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Almenn smíðavinna
- Viðhald og endurbætur á fasteignum
- Uppbygging eftir vatns-, raka- og brunatjón
- Uppsetning, viðgerðir og frágangur
- Önnur tilfallandi verkefni
Menntunar- og hæfniskröfur
- Sveinspróf í húsasmíði og/eða mikil reynsla af sambærilegum störfum
- Sjálfstæð og lausnamiðuð vinnubrögð
- Vandvirkni, stundvísi og áreiðanleiki
- Færni í mannlegum samskiptum og geta til að vinna vel með öðrum
- Góð kunnátta í íslensku eða ensku
- Gilt bílpróf
Auglýsing birt5. október 2026
UmsóknarfresturEnginn
Tungumálahæfni
ÍslenskaValkvætt
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Stangarhylur 5, 110 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (8)

Mælingar-og uppsetningar á gluggatjöldum
Sólargluggatjöld ehf.

Smiður
Kappar ehf.

Óskum eftir málara til starfa sem fyrst.
MT Ísland

Umsjónarmaður - Umsjón fasteigna
Félagsstofnun stúdenta

Starfsmaður í áhaldahús Reykhólahrepps
Reykhólahreppur

Smiður - Tækifæri til að vera þinnar hamingju smiður!
IKEA

Laus störf í byggingavinnu, hellulagnir, yfirborðsfrágang og jarðvinnu
PK Verk ehf.

Handlaginn Verkamaður / Workshop fabrication
Glerverk