Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær

Skóla- og frístundaliði - frístundaheimilið Álfakot Engidalsskóla

Engidalsskóli óskar eftir að ráða skóla- og frístundaliða í hlutastarf, um það bil 35-40% starf.

Engidalsskóli var stofnaður árið 1978, skólinn var sameinaður Víðistaðaskóla fyrir um áratug en endurheimti sjálfstæði sitt aftur haustið 2020 og er mikið uppbyggingarstarf í gangi. Skólinn er lítill og notalegur, hann sækja nemendur í 1.-7. bekk, í vetur eru nemendur tæplega 200.

Leiðarljós skólans eru Ábyrgð - Virðing – Vellíðan

Nánari upplýsingar um skólann má finna á heimasíðunni www.engidalsskoli.is

Í Engidalsskóla er starfrækt frístundaheimili fyrir 6 - 9 ára börn og félagsmiðstöð fyrir 10 - 12 ára börn. Markmið frístundastarfs er að gefa börnum og ungmennum tækifæri til að stunda skapandi og þroskandi félagsstarf í heilbrigðu umhverfi á jafnréttisgrundvelli.

Starfið felur í sér stuðning og aðstoð við nemendur á skólatíma og stýra hópum í frístundastarfi skólans.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Stuðningur við börn í skólastarfi
  • Starfa á frístundaheimili fyrir yngri nemendur
  • Stýra hópi í frístundastarfi
  • Starfa með fjölbreyttum nemendahópi
  • Aðstoðar í matsal og við undirbúning matmálstíma
  • Fylgjast með og aðstoða börn í leik og starfi
  • Önnur verkefni samkvæmt starfslýsingu skóla- og frístundaliða og sem yfirmaður felur starfsmanni

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Reynsla af sambærilegu starfi kostur
  • Áhugi á faglegu starfi með börnum
  • Góð íslenskukunnátta
  • Samstarfs- og samskiptahæfni
  • Sjálfstæði og skipulögð vinnubrögð
  • Hæfni til að aðlagast breyttum aðstæðum
  • Geta til að vinna undir álagi

Skilyrði við ráðningu er að viðkomandi hafi hreint sakavottorð.

Nánari upplýsingar veitir Margrét Halldórsdóttir, skólastjóri, [email protected] og í síma 5554433 og Arnheiður Guðmundsdóttir., deildarstjóri frístundastarfs, [email protected] og í síma 5554434.

Um kaup og kjör fer samkvæmt kjarasamningum Sambands íslenskra sveitafélaga við Starfsmannafélag Hafnarfjarðarbæjar.

Umsóknarfrestur er til og með 24. september 2026.

Greinargóð ferilskrá fylgi umsókn.

Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.

Auglýsing birt14. september 2026
Umsóknarfrestur24. september 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Breiðvangur 42, 220 Hafnarfjörður
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar