

Skógarstarf í Heiðmörk
Skógræktarfélag Reykjavíkur er sjálfstætt starfandi félagasamtök sem vinna að skógrækt og landbótum ásamt uppbyggingu og umhirðu útivistarsvæða. Heiðmörk og Esjuhlíðar eru í umsjón félagsins og njóta mikilla vinsælda, þar sem fjöldi gesta eykst ár frá ári. Skógræktarfélag Reykjavíkur óskar eftir starfskrafti til að starfa með öflugu teymi við grisjun og skógarumhirðu í Heiðmörk.
Fyrir utan grisjun og vélavinnu í skógi fær starfsmaður að taka þátt í starfi viðarvinnslu félagsins og fjölbreyttum verkefnum. Um er að ræða spennandi útivistarstarf og góðan félagsskap fyrir réttan aðila.
Starfið felst fyrst og fremst í skógarumhirðu og framleiðslu viðarafurða. Öll vinna félagsins fer fram með ríka áherslu á öryggi, vatnsvernd og varkárni á viðkvæmum vatnsverndarsvæðum.
- Grisjun og umhirða í skógi
- Útkeyrsla á bolvið úr skóginum
- Eftirlit og viðhald á vélum og tækjabúnaði
- Við vinnslu: kurla og framleiða eldivið
- Tilfallandi skógarvinna í Heiðmörk og öðrum skógum sem félagið rekur
- Bílpróf og vinnuvélapróf
- Kostur að hafa menntun sem tengist skógrækt eða landbúnaði
- Æskilegt að umsækjandi búi yfir hæfni til að stýra og vinna á vélum á öruggan hátt
- Kostur ef umsækjandi hefur menntun eða reynslu af viðhaldi véla og tækja
- Góð færni í mannlegum samskiptum og geta til að vinna sjálfstætt
- Umsækjandi þarf að vera 22 ára eða eldri
- Umsækjandi þarf að búa yfir vilja og burði til líkamlegrar vinnu
- Kostur ef umsækjandi hefur réttindi og reynslu af vinnu með keðjusög
- Mikilvægt að virða öryggisreglur og sýna varkárni við stjórn vinnuvéla
Íslenska
Enska










