
Akureyri
Akureyrarbær er stór vinnustaður með rúmlega 2.000 starfsmenn. Á hverju vori fjölgar starfsfólki um nálægt 1.200 manns vegna sumarafleysinga og vinnuskólans.
Starfsfólk Akureyrarbæjar sinnir margvíslegum verkefnum sem tryggja velferð og ánægju íbúa Akureyrar, hvort sem um er að ræða störf við leik- eða grunnskóla, íbúakjarna, rekstur mannvirkja, stjórnsýslu eða annað.

Skipulagssvið Akureyrarbæjar: Verkefnastjóri skipulagsmála
Viltu taka þátt í að móta framtíð Akureyrarbæjar? Ef svo er, þá er laus til umsóknar spennandi staða verkefnastjóra skipulagsmála.
Um 100% stöðu er að ræða með sveigjanlegum vinnutíma. Meginstarfstöð er í Ráðhúsi Akureyrar.
Möguleiki er að vinna í fjarvinnu af og til ef það hentar, 36 klst. vinnuvika og mötuneyti á vinnustað.
Næsti yfirmaður er skipulagsfulltrúi.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Umsjón með aðal- og deiliskipulagsverkefnum á vegum bæjarins í samvinnu við skipulagsfulltrúa og aðra hagsmunaaðila.
- Umsjón með stjórnsýslu varðandi afgreiðslu skipulagsmála.
- Vinna að kynningarmálum um skipulagsmál.
- Annast samskipti við Skipulagsstofnun og aðrar opinberar stofnanir.
- Veita upplýsingar um skipulagsmál til íbúa- og annarra hagsmunaaðila.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Gerð er krafa um háskólamenntun (BA, BS eða B.Ed.) í arkitektúr, landslagsarkitektúr, skipulagsfræði, landfræði, eða aðra menntun sem nýtist í starfi.
- Starfsreynsla á sviði skipulagsmála er kostur.
- Þekking á opinberri stjórnsýslu og verklagi er kostur.
- Sjálfstæð vinnubrögð og frumkvæði í starfi og færni til að tileinka sér nýjungar.
- Framúrskarandi hæfni í samskiptum og rík þjónustulund.
- Góð almenn tölvukunnátta.
- Góð íslenskukunnátta og hæfni til þess að tjá sig í ræðu og riti.
- Gerð er krafa um vammleysi, s.s. að vera með gott orðspor og að framkoma og athafnir á vinnustað og utan hans samrýmist starfinu.
Auglýsing birt23. september 2026
Umsóknarfrestur6. október 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Geislagata 9, 600 Akureyri
Starfstegund
Hæfni
ÁreiðanleikiArkitekt (húsameistari)ArkítektúrFagmennskaFrumkvæðiHeiðarleikiHugmyndaauðgiLandslagsarkitekt (landslagshönnuður)Mannleg samskiptiMetnaðurNýjungagirniOpinber stjórnsýslaSjálfstæð vinnubrögðSkipulagSkipulagsfræðingurTeymisvinnaÞjónustulund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (2)




