

Skemmtilegt starf í góðum félagsskap
Barnaskóli Kársness óskar eftir að ráða frístundaleiðbeinanda í frístundina Vinahól.
Barnaskóli Kársness er nýr sameinaður grunn- og leikskóli í vesturbæ Kópavogs. Í grunnskólahluta skólans eru nemendur í 1. til 4. bekk og um 50 starfsmenn.
Um er að ræða fjölbreytt og skemmtilegt starf með börnum í 1.-4. bekk að skóladegi loknum. Frístundin Vinahóll starfar í anda stefnu Kópavogsbæjar um málefni frístundastarfs og klúbbastarfs en þar er lögð áhersla á að hver einstaklingur fái að njóta sín og þroskast í umhverfi sem einkennist af hlýju, öryggi og virðingu. Gildi skólans eru virðing, þekking, ábyrgð og ánægja.
Um tímabundna ráðningu er að ræða, með möguleika á framtíðar starfi. Vinnutími er 13:00 - 16:00, 4 - 5 daga í viku.
Leiðbeina börnum í leik og starf
Stuðlar að jákvæðum samskiptum
Gengur í tilfallandi verkefni innan frístundarheimilis
Starfar samkvæmt leiðsögn frá næsta yfirmanni
Góð íslenskukunnátta skilyrði
Stundvísi og áreiðanleiki er skilyrði
Reynsla og áhugi á starfi með börnum æskileg
Framhaldskólamenntun eða önnur menntun sem nýtist í starfi æskileg
Þolinmæði og hæfni í mannlegum samskiptum
Viðkomandi þarf að vera skipulagður, sýna sjálfstæði og frumkvæði í starfi
Hreint sakavottorð í samræmi við lög og reglur Kópavogsbæjar
Stytting vinnuvikunar
Frítt í sundlagar Kópavogs












