Tinna ehf.
Tinna ehf.
Tinna ehf.

Skapandi sölustarf

Við í Tinnu leitum að hressum og hörkuduglegum starfsmanni með brennandi áhuga á prjónaskap.

Við erum fámennur vinnustaður með frábæru fólki sem óskar eftir lykilmanneskju í söluteymið okkar. Starfið er ótrúlega fjölbreytt og alltaf ný og skemmtileg verkefni á dagskrá.

Við leitum að sölumanni með frumkvæði, skipulagshæfni, sjálfstæði í vinnubrögðum, stundvísi og áreiðanleika.

Fagleg, jákvæð og snyrtileg framkoma er mikilvæg. Metnaður til að veita framúrskarandi þjónustu.

Vinnutími er 9:00 - 16:00 mán til fim og 9:00 -15:00 fös.

Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst.

Hlökkum til að heyra frá þér!

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Ábyrgð á sölupöntunum og úrvali í verslunum söluaðila.
  • Dagleg áfylling á vörur og vöruútstilling hjá söluaðilum í Reykjavík og á landsbyggð.
  • Vörusamantekt, vörumóttaka og reikningagerð á lager.
  • Afgreiðsla, þjónusta, afgreiðsla netpantana og afgreiðsla í verslun Tinnu. 
  • Lagertiltekt og útréttingar.
  • Önnur tilfallandi verkefni.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Vera með auga/reynslu fyrir útstillingum og sniðugum lausnum á framsetningu á vöru.
  • Geta unnið í krefjandi, hröðu og síbreytilegu starfsumhverfi.
  • Vera árangursdrifinn og lausnamiðaður að leysa úr verkefnum sem liggja fyrir með fókus á sölu.
  • Góð tölvukunnátta skilyrði og þekking á DK tölvukerfi kostur. Færni í samfélagsmiðlum.
  • Hefur gaman af því að vinna bæði í teymi eða sjálfstætt.
  • Vera heilsuhraustur og í góðu formi fyrir vöruflutninga og vörutilfærslur í verslunum.
  • Reynsla af verslunar- og sölustörfum skilyrði, ásamt góðri íslensku og enskukunnáttu.
  • Reynsla af útkeyrslu/akstri.  
  • Tinna er reyklaus vinnustaður.
Fríðindi í starfi

Létt hádegissnarl, kaffi og sódavatn. Alltaf eitthvað gott að nasla með kaffinu.

Auglýsing birt7. febrúar 2026
Umsóknarfrestur22. febrúar 2026
Tungumálahæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Nýbýlavegur 30, 200 Kópavogur
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.AfgreiðslaPathCreated with Sketch.Almannatengsl (PR)PathCreated with Sketch.Almenn ökuréttindiPathCreated with Sketch.ÁreiðanleikiPathCreated with Sketch.AðlögunarhæfniPathCreated with Sketch.DrifkrafturPathCreated with Sketch.FagmennskaPathCreated with Sketch.Fljót/ur að læraPathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.HeiðarleikiPathCreated with Sketch.Hreint sakavottorðPathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.LagerstörfPathCreated with Sketch.Líkamlegt hreystiPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.MetnaðurPathCreated with Sketch.NákvæmniPathCreated with Sketch.ÖkuréttindiPathCreated with Sketch.ReyklausPathCreated with Sketch.SamviskusemiPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.SnyrtimennskaPathCreated with Sketch.SölumennskaPathCreated with Sketch.StundvísiPathCreated with Sketch.TeymisvinnaPathCreated with Sketch.TóbakslausPathCreated with Sketch.ÚtkeyrslaPathCreated with Sketch.VandvirkniPathCreated with Sketch.VeiplausPathCreated with Sketch.Vinna undir álagiPathCreated with Sketch.VöruflutningarPathCreated with Sketch.VöruframsetningPathCreated with Sketch.Þjónustulund
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar