

Skáld Hótel leitar að vaktstjóra í eldhúsi og uppvaskara
Við leitum að metnaðarfullum og reyndum vaktstjóra í eldhúsi til að ganga til liðs við eldhústeymið á veitingastaðnum Abba-labba-lá á Skáld Hótel á Akureyri.
Um er að ræða virkt stjórnunarstarf fyrir einstakling sem hefur ánægju af því að taka þátt í daglegri þjónustu, en getur jafnframt borið ábyrgð á teyminu og rekstri eldhússins á vakt.
Sem vaktstjóri í eldhúsi vinnur þú náið með yfirmatreiðslumanni og berð ábyrgð á að stýra eldhúsinu á þinni vakt. Við leitum að einstaklingi sem leiðir með góðu fordæmi, heldur ró sinni í annasömum aðstæðum og leggur metnað í að viðhalda háum gæðastöðlum.
--------
We are looking for a motivated and experienced Kitchen Shift Manager to join the kitchen team at Abba-labba-lá, the restaurant at Skáld Hotel in Akureyri.
This is a hands-on leadership role for someone who enjoys being part of daily service while also taking responsibility for the kitchen team and the operation during each shift.
As Kitchen Shift Manager, you will work closely with the Head Chef and be responsible for leading the kitchen during your shifts. We are looking for someone who leads by example, stays calm during busy service, and takes pride in maintaining high standards.
- Stýra og skipuleggja eldhústeymið á vakt
- Bera ábyrgð á daglegum rekstri eldhússins þegar yfirmatreiðslumaður er ekki á staðnum
- Tryggja að allar stöðvar og undirbúningur séu tilbúin fyrir þjónustu
- Viðhalda samræmi í gæðum, bragði, framsetningu og skömmtun
- Samhæfa þjónustu og eiga góð samskipti við veitingateymi
- Styðja við og þjálfa matreiðslumenn og nýja starfsmenn
- Viðhalda háum kröfum um hreinlæti, matvælaöryggi, skipulag og snyrtimennsku
- Aðstoða við birgðahald, pantanir, nýtingu hráefna og lágmörkun matarsóunar
- Greina og leysa vandamál sem koma upp í undirbúningi og þjónustu
- Stuðla að jákvæðu, faglegu og virðingarfullu starfsumhverfi
-------
- Lead and organize the kitchen team during your shift
- Take responsibility for the daily kitchen operation when the Head Chef is not present
- Ensure all sections and mise en place are ready for service
- Maintain consistency in food quality, taste, presentation, and portioning
- Coordinate service and communicate effectively with the front-of-house team
- Support and train chefs and new team members
- Maintain high standards of hygiene, food safety, organization, and cleanliness
- Assist with stock control, ordering, use of ingredients, and reducing food waste
- Identify and solve problems during preparation and service
- Contribute to a positive, professional, and respectful working environment
- Hefur góða reynslu af störfum í faglegu eldhúsi
- Hefur reynslu af teymisstjórnun eða er tilbúinn að taka næsta skref í stjórnunarhlutverk
- Er öruggur í að stýra eldhúsi í annasömum aðstæðum
- Er skipulagður, áreiðanlegur og ábyrgur
- Á auðvelt með skýr samskipti og góða samvinnu
- Hefur auga fyrir smáatriðum og samræmi í vinnubrögðum
- Þekkir kröfur um matvælaöryggi og faglega staðla í eldhúsi
- Leiðir með góðu fordæmi og er tilbúinn að vinna með teyminu
- Hefur ástríðu fyrir matargerð og vilja til að þróast áfram í starfi
Fyrri reynsla sem Chef de Partie, vaktstjóri, Junior Sous Chef, Sous Chef eða í sambærilegu starfi er kostur.
----------
- Has solid experience working in a professional kitchen
- Has previous team leadership experience or is ready to take the next step into a leadership role
- Is confident running a busy kitchen service
- Is organized, reliable, and able to take responsibility
- Communicates clearly and works well with others
- Has strong attention to detail and consistency
- Understands food safety and professional kitchen standards
- Leads by example and is willing to work alongside the team
- Is passionate about food and wants to continue developing professionally
Previous experience as a Chef de Partie, Shift Leader, Junior Sous Chef, Sous Chef, or in a similar role is an advantage.
Starfið hentar vel reyndum matreiðslumanni sem er tilbúinn að taka á sig meiri ábyrgð og vill þróast áfram sem leiðtogi í eldhúsi.
Þú færð tækifæri til að vinna náið með yfirmatreiðslumanni, taka þátt í uppbyggingu eldhússins og verða mikilvægur hluti af vaxandi og metnaðarfullu teymi á Abba-labba-lá.
Sem hluti af Hilton fá starfsmenn aðgang að starfsmannakjörum innan Hilton, samkvæmt gildandi reglum hverju sinni. Þar geta meðal annars falist afsláttarkjör á gistingu á Hilton-hótelum og önnur tengd fríðindi fyrir starfsfólk.
--------
This position is ideal for an experienced chef who is ready to take on more responsibility and wants to develop as a kitchen leader.
You will have the opportunity to work closely with the Head Chef, take part in building up the kitchen, and become an important part of a growing and ambitious team at Abba-labba-lá.
We offer
- The opportunity to take part in building up a new restaurant and hotel in the heart of Akureyri
- A workplace where quality, culture, and teamwork are at the forefront
- A professional and supportive working environment
- Hilton team member benefits, subject to Hilton’s current terms and conditions
- Training and opportunities to grow within the role
- A positive team spirit in a supportive working environment
Enska
Íslenska










