
Sjúkraþjálfari óskast til starfa
Vegna fæðingarorlofs viljum við hjá Endurhæfingu – þekkingarsetri bæta sjúkraþjálfara við flottan hóp fagfólks. Um er að ræða 80-100% starf í a.m.k. eitt ár frá 1.janúar 2026, möguleiki er á áframhaldandi ráðningu. Endurhæfing - þekkingarsetur veitir sérfræðiþjónustu á sviði endurhæfingar, hæfingar og hjálpartækja. Góð þjálfunaraðstaða, m.a innlaug sem gefur mikla möguleika til þjálfunar einstaklinga og hópa. Fjölbreytt starf og frábærir vinnufélagar sem vinna þétt saman.
Góð föst mánaðarlaun í boði.
Vinnutími mán. - fim. 08:00 til 15:45 og föstudaga 08:00 - 15:00
Allar nánari upplýsingar veitir:
Heiða B. Knútsdóttir yfirsjúkraþjálfari, [email protected]
Sími: 414 4500
www.endurhaefing.is
• Íslenskt starfsleyfi sem sjúkraþjálfari
• Íslenskukunnátta
• Góðir samskiptahæfileikar og jákvæðni
• Faglegur metnaður
